Sevilla-liðið í frábærum málum í Evrópudeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. maí 2015 21:05 Bakvörðurinn Aleix Vidal var maður leiksins hjá Sevilla. Vísir/Getty
Meistarar Sevilla eru komnir með annan fótinn inn í sinn annan úrslitaleik í röð í Evrópudeildinni eftir 3-0 heimasigur í fyrri undanúrslitaleik sínum á móti Fiorentina frá Ítalíu. Það er miklu meiri spenna í hinni viðureigninni eftir að Napoli og Dnipro Dnipropetrovsk gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leik sínum á Ítalíu. Rafael Benítez og lærisveinar hans í Napoli voru þó mjög ósáttir með jöfnunarmarkið sem kom tíu mínútum fyrir leikslok. Úrslit kvöldsins þýða þó að það eru mjög litlar líkur á að það verði ítalskur úrslitaleikur en spilað verður til úrslita í Evrópudeildinni í Varsjá 27. maí næstkomandi. Bakvörðurinn Aleix Vidal var maður leiksins í 3-0 sigri Sevilla en hann skoraði tvö fyrstu mörk Sevilla-liðsins og lagði síðan upp það þriðja fyrir varamanninn Kévin Gameiro. Napoli var yfir í hálftíma en fékk á sig dýrkeypt jöfnunarmark tíu mínútum fyrir leikslok. Það var reyndar rangstöðulykt af markinu og Ítalirnir voru ekki sáttir. David López kom Napoli yfir á 50. mínútu en varamaðurinn Yevhen Seleznyov jafnaði metin á 80. mínútu aðeins mínútu eftir að hann kom inná sem varamaður. Denys Boyko, markvörður Dnipro, stóð sig frábærlega í markinu og varði meðal annars mörgum sinnum úr dauðafærum frá Gonzalo Higuain. Sevilla vann Evrópudeildin í fyrra eftir sigur á Benfica í vítakeppni í úrslitaleiknum en Sevilla-menn slógu þá Valencia út úr undanúrslitnum. Aleix Vidal skoraði mörkin sín á 17. og 52. mínútu leiksins en þriðja marki skoraði síðan Kévin Gameiro á 75. mínútu eða aðeins mínútu eftir að honum var skipt inn á völlinn.
Fótbolti Mest lesið Hausverkur fyrir Iraola Enski boltinn „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport Kallaður fyrir þingnefnd vegna tengslanna við Trump Fótbolti Bjóða hverjum sem vinnur Littler 84 milljónir Sport Uppgjörið: KA - Þór 0-0 | Steindauður norðanslagur Íslenski boltinn Mbappé sár eftir HM Fótbolti Rosenborgarar Freys óstöðvandi Fótbolti „Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Íslenski boltinn Úrslitaleikurinn á HM reyndist síðasti leikurinn á ferlinum Fótbolti „Góðir tímar framundan“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Finnst illa að Argentínu vegið: „Enginn fótur fyrir þessu hatri“ Kallaður fyrir þingnefnd vegna tengslanna við Trump Dagskráin í dag: Bikarúrslitaliðin í eldlínunni „Góðir tímar framundan“ Hausverkur fyrir Iraola „Hefði nú verið betra að vera með tvo sigra“ „Mjög ánægður með margt í leiknum en óánægður með jafntefli“ Uppgjörið: KA - Þór 0-0 | Steindauður norðanslagur „Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Fyrirliði Njarðvíkur til Vals Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-0 | Ágúst Orri hetjan Mbappé sár eftir HM Rosenborgarar Freys óstöðvandi Aðstoðarþjálfari Jökuls í Vesturbæinn Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Úrslitaleikurinn á HM reyndist síðasti leikurinn á ferlinum „Við eigum harma að hefna“ Diomande ætlar til Real Samstarf við rússneskt veðmálafyrirtæki varð Pirlo að falli Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Sjáðu mörkin þegar ÍA kjöldró Stjörnuna Chiesa elskar Liverpool og vonast eftir „nýju upphafi“ Infantino svarar gagnrýnendum í langri færslu: „Heimurinn þarf ást, ekki hatur“ Sjáðu Sveindísi skora í öðrum leiknum í röð Hljóðlátu mótmælin munu ekki fara fram hjá neinum 59 ára fótboltagoðsögn skoraði eftir 1351 markalausa daga Rúnar: Ég hef aldrei farið á Þjóðhátíð Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Jóhannes Karl: Strákarnir eiga skilið frí yfir helgina Uppgjörið: ÍA-Stjarnan 5-1 | Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Sjá meira