Tvö ár í fangelsi: Braut gegn 14 ára stúlku Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 16. apríl 2015 15:34 Maðurinn var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn 14 ára gamalli stúlku, fyrir vörslu barnakláms og fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. vísir/hari
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt 36 ára gamlan karlmann, Finnboga Þórisson, í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn 14 ára gamalli stúlku, fyrir vörslu barnakláms og fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Manninum var gefið að sök að hafa í eitt skipti á tímabilinu janúar til mars 2012 sleikt brjóst stúlkunnar og þuklað þau, bæði utan og innan klæða, og greitt henni fyrir það allt að 9.000 krónur. Átti brotið sér stað í sameign í kjallara hússins þar sem stúlkan bjó. Þá var Finnbogi einnig ákærður fyrir að hafa haft í fórum sínum 55 ljósmyndir sem sýna börn á kynferðislega og klámfenginn hátt en árið 2011 hlaut hann einnig dóm fyrir vörslu barnakláms.Bar því við að hann væri ósakhæfur Finnbogi játaði fyrir dómi að hafa brotið gegn stúlkunni og haft barnaklám í sinni vörslu. Hann bar því þó við að hafa verið ósakhæfur á þeim tíma sem brotin áttu sér stað. Geðlæknir og sálfræðingur voru því fengnir til að leggja mat á það hvort Finnbogi væri sakhæfur. Niðurstaða þeirra var sú að svo væri en bar ákærði því þá við fyrir dómi að stúlkan hefði verið samþykk því sem þeirra fór á milli. Þá væru myndirnar í tölvunni ekki í hans eigu.Fjölskipaður héraðsdómur féllst ekki á málsvörn Finnboga og taldi sannað bæði með vitnisburði stúlkunnar og hans sjálfs að hann hefði gerst sekur um kynferðisbrot. Dómurinn taldi jafnframt sannað að myndirnar sem fundust í tveimur tölvum í hans eigu væru með raun réttri hans myndir og hann því gerst sekur um vörslu barnakláms. Sló manninn með hníf, skóflu og spýtu Líkamsárásin sem Finnbogi var einnig ákærður átti sér stað í janúar 2014. Var hann ákærður fyrir að hafa ítrekað slegið brotaþola höggum í andlit, höfuð og líkama. Notaði hann til þess barefli, meðal annars hníf, stunguskóflu og spýtu. Maðurinn sem Finnbogi réðst á hlaut mikla áverka en hann höfuðkúpubrotnaði, nefbrotnaði og hlaut sex skurði á andliti svo eitthvað sé nefnt. Finnbogi neitaði sök og byggði á því að hann hafi verið í sjálfsvörn. Maðurinn sem hann réðst á kom til hans um miðja nótt til að innheimta skuld og þrátt fyrir að „ákærði hafi verið hræddur og á tímabili mátt vænta þess að á hann yrði ráðist er þess að gæta að telja verður fram komið að flestir þeir áverkar sem brotaþoli hlaut hafi komið til þegar ákærði veittist að honum með bareflum og fyrir hendi var að öðru leyti sú aðstaða að ekki stafaði lengur ógn af honum. Í ljósi þessa verða það ekki talin eðlileg viðbrögð manns í aðstöðu ákærða að grípa til þessara aðgerða gagnvart brotaþola.“ Dómurinn féllst því ekki á málsvörn Finnboga og var hann því fundinn sekur um það sem honum var gefið að sök í ákæru. Þá var hann jafnframt dæmdur til greiðslu miskabóta, skaðabóta, auk sakarkostnaðar og málsvarnarlauna verjanda síns.
Mest lesið Björgvin Halldórsson látinn Innlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Innlent Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Sjá meira