Grein Rolling Stone um hópnauðgun í háskóla dregin til baka Bjarki Ármannsson skrifar 6. apríl 2015 09:47 Háskólinn í Virginia. Vísir/AFP
Bandaríska tímaritið Rolling Stone hefur dregið til baka, og beðist afsökunar á, grein sem það birti í fyrra þar sem sagt var frá hópnauðgun á háskólasvæði í Virginíu-ríki. Rannsókn lögreglu leiddi ekkert saknæmt í ljós og skýrsla Columbia-háskólans um greinina segir hana meingallaða.Frá þessu greinir meðal annars BBC. Greinin er eftir blaðamanninn Sabrina Erdely og segir ítarlega frá kynferðisbrotum sem kvenkyns háskólanemandi, sem aðeins er kölluð Jackie í greininni og í fjölmiðlum, segist hafa orðið fyrir árið 2012. Greinin vakti mikla athygli þegar hún var birt en skýrsla Columbia segir henni um margt ábótavant. Því er fyrst og fremst fundið til ama að Erdely hafi stuðst eingöngu við frásögn Jackie, en ekki leitast við að fá hana staðfesta hjá öðrum. Hún hafi ekki heldur reynt að ná í mennina sem Jackie sagði hafa nauðgað sér og kalla skýrsluhöfundar það brot á „grundvallarvinnubrögðum blaðamanna.“ Höfundar skýrslunnar ganga svo langt að segja að með þessum vinnubrögðum hafi Erdely grafið undan þeim árangri sem náðst hefur við að berjast gegn kynbundnu ofbeldi. Greinin hafi ýtt undir hugmyndir um að margar konur beri ósannar nauðgunarsakir á karlmenn. Will Dana, ritstjóri Rolling Stone, segir í tilkynningu að skýrsla Columbia hafi verið „sársaukafull lesning.“ Hann biður alla hlutaðeigandi afsökunar á greininni, þar á meðal starfsfólk og nemendur við Háskólann í Virginíu.
Mest lesið Kosningavaktin: Sjálfstæðisflokkurinn fagnaði um allt land Innlent Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Innlent Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Innlent Hildur með pálmann í höndunum Innlent „Hvað sagðiru, 42? Það er geðveikt!“ Innlent Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Innlent Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina Innlent Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Innlent Mótframbjóðendur „hvísla ástarorðum“ Innlent Lokatölur í Kópavogi: Ásdís með hreinan meirihluta Innlent Fleiri fréttir Streeting vill formannsstólinn og aftur inn í Evrópusambandið Bíl ekið á hóp manna í Modena Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Saka tóbaksfyrirtæki um að halda nikótínpúðum að börnum Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Streeting segir af sér úr ríkisstjórn Starmer Varaði Trump við átökum vegna Taívan Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Enn eykst þrýstingur á Starmer Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Sjá meira