Jóhann Berg: Stefnan er tekin á ensku úrvalsdeildina Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. apríl 2015 14:15 Jóhann Berg Guðmundsson fagnar marki fyrir Charlton. vísir/getty
Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsmaður í fótbolta, hefur spilað frábærlega fyrir Charlton á sínu fyrsta tímabili í ensku B-deildinni. Hann gekk í raðir liðsins síðasta sumar frá AZ Alkmaar í Hollandi. Jóhann er búinn að skora tíu mörk í öllum keppnum og mörg hver glæsileg, en síðast skoraði hann um helgina. Þá lagði hann upp mark fyrir Eið Smára Guðjohnsen í landsleik gegn Kasakstan í lok mars. „Ég er búinn að skora nokkuð falleg mörg. Í gegnum minn feril hafa mörkin ekki verið mörg en frekar falleg. Maður hefur aðeins verið að reyna ná inn potum líka til að skora fleiri mörk,“ sagði Jóhann Berg í viðtali við Akrabogina á X977 í gær. Hann sér ekki eftir vistaskiptunum til Englands og er ánægður með hvað hann hefur fengið mikið að spila. „Ég átti von á þessu. Ég talaði við þjálfarann sem var hér fyrr á tímabilinu. Hann vildi ólmur fá mig og þá vissi ég strax að ég væri lykilmaður og myndi spila hvern leik. Ég hef alltaf haft fulla trú á mér,“ sagði Jóhann Berg.Jóhann Berg sneri aftur í byrjunarlið landsliðsins í síðasta leik.vísir/gettyLandsliðsmaðurinn segir ensku B-deildina vera erfiða en skemmtilega. Draumurinn er þó að spila í efstu deild enska boltans. Hann gæti yfirgefið Charlton í sumar. „Ég hef verið óhræddur við að segja það, að mitt markmið er að spila í ensku úrvalsdeildinni. Að fara til Charlton var skref þangað. Um leið og þú ert kominn inn á þennan enska markað vita liðin að þú sér tilbúinn í þá deild,“ sagði Jóhann Berg, en mörkin í vetur hafa vakið athygli. „Ég hef komið vel inn í þetta og mörkin hafa vakið nokkra athygli. Ætli við sjáum ekki til hvað gerist svo í sumar. Í sumar á ég bara eitt ár eftir af samningi hjá Charlton. Það gerist eitthvað í sumar, hvort sem ég fari eitthvað annað eða skrifi undir nýjan samning.“ „Ég hef mikið verið spurður undanfarið að því hvort ég ætli ekki að fara skrifa undir nýjan samning en ég vil bara klára þessa fjóra leiki sem eftir eru á tímabilinu. Eftir það skoða ég alla möguleika og sé hvað er best fyrir mig að gera,“ sagði Jóhann Berg. Allt viðtalið má heyra hér að neðan.
Enski boltinn Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn María að gera Þóri að afa Fótbolti „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Handbolti Maður dagsins á HM: Slökkti á tölvunni og heldur áfram að þagga niður í fólki Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Fleiri fréttir Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Sjá meira