Sturridge gæti verið frá í mánuð vegna meiðslanna Tómas Þór Þórðarson skrifar 27. mars 2015 09:29 Daniel Sturridge hefur verið óheppinn með meiðsli. vísir/getty
Daniel Sturridge, framherji Liverpool, er kominn aftur á sjúkralistann, en hann dró sig úr enska landsliðshópnum í gær vegna meiðsla á mjöðm. Fram kemur á vef Sky Sports að Sturridge verði frá í mánuð vegna meiðslanna, en hann á að hafa rifið vöðva í mjöðm. Hann varð fyrir meiðslunum í tapinu gegn Manchester United á sunnudaginn. Liverpool á eftir að staðfesta hversu alvarleg meiðslin eru, en ef satt reynist missir framherjinn af aprílmánuði og nokkrum mikilvægum leikjum á endasprettinum hjá Liverpol. Hann missir að öllum líkindum af deildarleiknum gegn Arsenal um aðra helgi, seini leiknum gegn Blackburn í átta liða úrslitum bikarsins og mögulega undanúrslitaleiknum á Wembley á móti Aston Villa komist Liverpool það langt. Sturridge hefur verið mikið meiddur á leiktíðinni, en hann er aðeins búinn að spila ellefu leiki í úrvalsdeildinni í vetur og skora fjögur mörk. Verði framherjinn frá í heilan mánuð og eigi svo eftir að koma sér í leikform eitthvað framan af maí dældar það verulega Meistaradeildarvonir Liverpool. Liðið er í fimmta sæti, fimm stigum á eftir Manchester United eftir tapið á sunnudaginn.
Enski boltinn Mest lesið Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Formúla 1 Strákurinn fékk VAR í jólagjöf Enski boltinn Littler sættist við áhorfendur í salnum Sport Berst við krabbamein Fótbolti Sumir hneykslast á hegðun heimsmeistarans Sport Ungur leikmaður Metz slasaðist í sprengingunni Fótbolti Færir sig um set í Lundúnum Enski boltinn Mourinho grætti Cristiano Ronaldo í klefanum Fótbolti Giftu sig á gamlársdag Handbolti „Hann verður alltaf númer eitt“ Sport Fleiri fréttir „Bara plástur á sár, hann mun ekki vera þarna í mörg ár“ Ungur varnarmaður sagður á leið til Liverpool Sjáðu mörkin sem voru skoruð á nýársdag Færir sig um set í Lundúnum Skilur baulið hjá stuðningsmönnum vel Strákurinn fékk VAR í jólagjöf Sunderland hjálpaði Arsenal með því að taka stig af Man. City „Mjög svekkjandi“ Líklegast að Chelsea ráði stjóra Strassborg Fyrsta mark Mateta í langan tíma dugði ekki Palace til að taka öll stigin Bitlausir meistarar byrjuðu árið á því að tapa stigum á heimavelli Arsenal græddi á mistökum dómarans í 1-0 sigrinum á Everton Sjáðu Mateta skora fyrsta mark ársins 2026 Biðin mikla hjá Unai Emery tók aðeins nokkrar sekúndur Tók báða Íslendingana út af í hálfleik „Ekki jólin sem ég bjóst við“ Andri Lucas missti af þriðja leiknum í röð og áfram markaleysi án hans Aganefndin í fríi og Romero fær að spila í dag Chelsea búið að reka Enzo Maresca Slá því upp að Maresca gæti verið rekinn frá Chelsea í dag Hvað á Liverpool að gera með Mo Salah og Alexander Isak? Sjáðu allt það besta úr enska boltanum á árinu 2025 Alls ekki síðasti leikur Semenyo Segir dómarana bara hafa verið að giska Sjáðu Arsenal rúlla yfir Villa og Úlfana ná í stig á Old Trafford Réttlætti Zirkzee-skiptinguna: „Stundum sækirðu betur með færri framherja“ Arsenal rústaði Villa og náði fimm stiga forskoti Neyðarlegt jafntefli United gegn Úlfunum Welbeck skoraði úr einu víti og brenndi af öðru Fékk á sig víti í mögulegum kveðjuleik Sjá meira