Erlent

Forsetakosningar í Kasakstan í apríl

Atli Ísleifsson skrifar
Vladimír útín Rússlandsforseti og Nursultan Nazarbajev, forseti Kasakstans.
Vladimír útín Rússlandsforseti og Nursultan Nazarbajev, forseti Kasakstans. Vísir/AFP
Nursultan Nazarbajev, forseti Kasakstans, hefur boðað til forsetakosninga í landinu þann 26. apríl næstkomandi.

Fullvíst er talið að Nazarbajev muni aftur bjóða sig fram þó að hann tilkynnti ekki um slíkt í ávarpi sínu fyrr í dag. Kosið er til fimm ára.

Hinn 74 ára Nazarbayev er fyrrum starfsmaður í stálsmiðju og hefur stjórnað landinu allt frá árinu 1989 þegar hann tók við stjórnartaumunum í Kommúnistaflokknum í Kasakstan. Um 17 milljónir manna búa í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×