Alþjóðasamfélagið sagt hafa brugðist 26. febrúar 2015 08:45 Barack Obama, Vladimír Pútín og Xi Jinping Leiðtogar Bandaríkjanna, Rússlands og Kína fá allir á baukinn í nýrri ársskýrslu mannréttindasamtakanna Amnesty International. nordicphotos/AFP „
Þetta hefur verið skelfilegt ár fyrir þá sem reyna að berjast fyrir mannréttindum og þá sem sitja fastir í hörmungum stríðsátaka,“ segir í nýjustu ársskýrslu mannréttindasamtakanna Amnesty International. „Við skulum þó vona að á næstu árum, þegar horft er til baka til ársins 2014,“ segir enn fremur, „þá verði litið á það sem við máttum ganga í gegnum á árinu 2014 sem lágpunkt, algjöru lágmarki hafi verið náð og við höfum síðan risið upp úr þessu og skapað okkur betri framtíð.“ Samtökin gagnrýna harðlega voldugustu ríki heims og alþjóðasamfélagið svonefnda, sem hafi brugðist seint og illa við hverju neyðarástandinu á fætur öðru. Fastaríkin fimm í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna eru sérstaklega hvött til þess að afsala sér neitunarvaldi sínu í málum sem varða þjóðarmorð, stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni: „Það væri mikilvægt fyrsta skref og myndi bjarga mörgum mannslífum,“ segir í skýrslunni.Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna Á fundi sínum 30. desember síðastliðinn hafnaði ráðið ályktun um að Ísrael létu herteknu svæðin af hendi fyrir árslok 2017.fréttablaðið/EPAGrimmileg átök víða um heim hafa ekki aðeins kostað fjölda mannslífa heldur hrakið fólk frá heimilum sínum, þannig að flóttamannavandinn hafi aldrei verið meiri. Þar á stríðið í Sýrlandi stærstan þátt, því fjórar milljónir manna hafa hrakist þaðan á síðustu árum. Flestir flóttamannanna frá Sýrlandi halda til í nágrannaríkjunum, sem flest hver standa sjálf illa efnahagslega. Auðugu löndin í Evrópu og víðar eru hins vegar gagnrýnd fyrir að neita að taka á sig sanngjarnan hluta vandans. „Það er viðbjóðslegt að sjá að auðugu löndin leggi alla áherslu á að halda fólki úti frekar en að hjálpa því að lifa,“ segir í skýrslunni. Salil Shetty, framkvæmdastjóri Amnesty International, gagnrýnir valdamenn heims einnig fyrir að huga ekki að vernd almennra borgara, sem eigi þó að vera algert forgangsatriði þegar átök brjótast út. Alþjóðalög séu afskaplega skýr um það að árásir megi aldrei beinast að almennum borgurum: „Reglan um að greina á milli almennra borgara og bardagafólks er grundvallartrygging gegn því að fólk lendi í hryllingi styrjalda,“ segir hann. „Og samt gerist það aftur og aftur að almennir borgarar lenda í eldlínu átakanna.“
Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Sjá meira