Miðaldra notendum munntóbaks er tvöfalt hættara við að verða háðir áfengi en öðrum. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar við Háskólann í Umeå í Svíþjóð. Byggt er á gögnum úr heilsufarsrannsóknum á 21 þúsund einstaklingum á árunum 1991 til 1997.
Við fyrstu rannsóknina notuðu 25 prósent karlanna og tæp fjögur prósent kvennanna munntóbak. Enginn sýndi þá merki um að vera háður áfengi.
Tíu árum seinna voru átta prósent munntóbaksnotenda háð áfengi en þrjú prósent hinna.
Er sagt hættara við áfengissýki
ingibjörg bára sveinsdóttir skrifar
