Verður Petr Cech munurinn á milli Arsenal og Chelsea í vor? 8. ágúst 2015 09:30 Cech er orðinn vanur því að lyfta þessum, tekst honum að endurtaka leikinn á Emirates? Vísir/Getty
Arsenal hefur unnið titil tvö ár í röð og því yfir mörgu að gleðjast hjá stuðningsmönnum félagsins en sá stóri hefur ekki unnist eftir að félagið yfirgaf Highbury 2006. Arsenal hefur verið í annaðhvort þriðja eða fjórða sæti undanfarin tíu tímabil en það hefur alltaf vantað aðeins upp á að liðið hefði burði í að keppa um enska titilinn. Chelsea vann enska meistaratitilinn með sannfærandi hætti á síðustu leiktíð en Jose Mourinho hafði ekki pláss fyrir tékkneska landsliðsmarkvörðinn Petr Cech. Petr Cech var búinn að vinna þrettán titla á ellefu árum með Chelsea og rússneski eigandinn Roman Abramovich var tilbúinn að leyfa honum að fara, meira að segja til erkifjendanna í Arsenal. Cech þakkaði Roman Abramovich fyrir en um leið varð verkefni Jose Mourinho að verja titilinn enn erfiðara. Sóknarleikur Arsenal hefur ávallt verið í hæsta gæðaflokki undanfarin ár en vandamálið hefur verið hinum megin á velli og ekki síst í markvarðarstöðunni. Koma Petr Cech er í raun svar við öllum bænum stuðningsmanna Arsenal sem sáu liðið sýna styrk á lokasprettinum í fyrra þar sem það vann meðal annars átta leiki í röð og tapaði aðeins einum af 18 deildar- og bikarleikjum frá miðjum febrúar. Fréttablaðið spáir Arsenal meistaratitlinum og að Petr Cech sé síðasta púslið í meistaraverk Arsene Wenger. Það hefur tekið hann sinn tíma að byggja upp nýtt lið á Emirates og í vetur er hann með efni í fyrstu Englandsmeistara Arsenal í tólf ár.
Enski boltinn Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn María að gera Þóri að afa Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Meiðsli, veikindi og leikbann í herbúðum Englands Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Maður dagsins á HM: Slökkti á tölvunni og heldur áfram að þagga niður í fólki Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Sjá meira