Hvað er nýtt í vetur? 8. ágúst 2015 13:00 Louis van Gaal, stjóri Man. Utd.
Nýtt tímabil kallar á margt nýtt. Nýja búninga, nýja leikmenn og líka nýjar reglur.Leikaraskapur: Nú á að fara að taka fastar á leikaraskap. Loksins, loksins segja einhverjir. Ef í ljós kemur á myndbandsupptökum að leikmaður var ranglega rekinn af velli, og bannið er dregið til baka, þá á leikmaðurinn sem fiskaði andstæðinginn af velli yfir höfði sér allt að þriggja leikja bann. Eftir þessu hefur verið kallað lengi og deildin loks að bregðast við.Knattspyrnustjórar: Það á að taka harðar á hegðun knattspyrnustjóra á hliðarlínunni. Fyrst fá þeir aðvörun og svo verða þeir sendir upp í stúku.Gróf brot: Ef brot er einstaklega gróft að mati dómara þá er stjórinn sendur strax upp í stúku. Menn fá þó áfram leyfi til þess að vera lifandi en gæta verður hófs eins og í svo mörgu.Kvart: Það er orðið afar algengt að lið hópist að dómara og kvarti. Jafnvel allir leikmenn liða og það fer í taugarnar á ansi mörgum. Sérstaklega þar sem dómarar eru oft ragir við að refsa fyrir slíka hjarðhegðun.Fjöldi til dómara: Áður máttu þrír koma til dómara en nú mega aðeins tveir koma. Félög verða kærð ef þau brjóta þessa reglu sem sjaldan hefur reyndar verið farið eftir. Á að reyna að breyta því núna.Rangstaða: Aftur hafa verið gerðar áherslubreytingar á rangstöðureglunni. Leikmenn sem hafa áhrif á gang mála þó svo þeir snerti ekki boltann verða dæmdir rangstæðir.Nýr bolti: Notaður verður nýr bolti í vetur en hann heitir Nike Ordem 3. Útlitið er ekki ósvipað grímu Köngulóarmannsins. Þessi bolti á víst ekki að breyta jafn mikið um stefnu og síðasti bolti og markmenn fagna því nýja boltanum.
Enski boltinn Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Enski boltinn Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Einn sá besti snýr aftur Sport Scheffler tryggði sér 1.200 milljónir og toppaði Tiger Golf Fleiri fréttir Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Sjá meira