Er þeirra tími kominn? 8. ágúst 2015 09:00 Arsenal varð bikarmeistari annað árið í röð í vor en tekst þeim að landa þeim stóra í vor? Vísir/Getty
Arsenal mætir til leiks með nánast sama lið og í fyrra. Það er þó ein stór breyting á liðinu: Petr Cech er kominn í markið og hann gæti verið síðasta púslið sem vantaði til að breyta Arsenal úr næstum því liði í meistaralið. Cech býr yfir mikilli reynslu og er sigurvegari, auk þess að vera enn frábær markvörður. Hann sannaði mikilvægi sitt strax í leiknum um Samfélagsskjöldinn, þar sem Arsenal vann hans gömlu félaga í Chelsea með einu marki gegn engu. Arsenal hefur ekki verið jafn vel sett með markmann síðan Þjóðverjinn Jens Lehmann var upp á sitt besta. Arsene Wenger er að hefja sitt nítjánda tímabil sem knattspyrnustjóri Arsenal. Frakkinn byrjaði frábærlega hjá Arsenal og vann þrjá Englandsmeistaratitla og fjóra bikarmeistaratitla á fyrstu níu árum sínum hjá félaginu. En svo tók við níu ára löng bið eftir titli þar sem margir settu spurningarmerki við Wenger og hvort Frakkinn væri kominn á endastöð með liðið. En eftir tvo bikartitla á síðustu tveimur árum og öflugan lokasprett á síðasta tímabili eru væntingarnar miklar fyrir tímabilið í ár. Og ekki að ástæðulausu. Arsenal var með besta liðið í seinni umferðinni í fyrra þar sem sterkur varnarleikur og beittur sóknarleikur fóru saman. Ungu strákarnir Francis Coquelin og Héctor Bellerín komu nánast fullskapaðir inn í liðið, Santi Cazorla blómstraði eftir að hann var færður inn á miðjuna, Alexis Sánchez og Mesut Özil sýndu snilli sína og svo mætti lengi telja. Arsenal-liðið hefur líka mannast að undanförnu, það spilar vel gegn hinum toppliðunum, er harðgerara og lætur ekki vaða yfir sig eins og það gerði áður. Og þá er liðið byrjað aftur að vinna svokallaða vinnusigra og þeim á örugglega eftir að fjölga með tilkomu Cech í markið. Margt mælir með því að það verði Arsenal sem veiti ríkjandi meisturum Chelsea mesta keppni um Englandsmeistaratitilinn og svo gæti vel farið að Wenger myndi lyfta þeim stóra í byrjun maí eftir tólf ára langa bið.
Enski boltinn Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Enski boltinn Einn sá besti snýr aftur Sport Scheffler tryggði sér 1.200 milljónir og toppaði Tiger Golf Fleiri fréttir Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Sjá meira