Ótti við innrás Rússa magnast 14. apríl 2014 18:55
Úkraínskir uppreisnarmenn, sem vilja sameinast Rússlandi, hafa nú hertekið fleiri opinberar byggingar og lögreglustöðvar í austurhéruðum landsins. Aðskilnaðarsinnum fjölgar og ótti við innrás Rússa í Úkraínu magnast. Vopnaðir aðskilnaðarsinnar hafa hertekið opinberar byggingar í austurhluta Úkraínu síðustu daga. Í yfirlýsingu í gær gaf Olexander Turchynov, settur forseti landsins, uppreisnarmönnunum frest til klukkan níu í morgun til að yfirgefa byggingarnar áður en gripið yrði til víðtækra hernaðaraðgerða. Það gerðu þeir ekki og réðust þess í stað inn í höfuðstöðvar lögreglu í bænum Horlivka í austurhluta Úkraínu og lögðu þær undir sig. Stjórnvöld í Kænugarði skilgreina innrásirnar sem hryðjuverk, en engar fréttir hafa þó borist af því að herinn hafi látið til skarar skríða. Aðskilnaðarsinnar hafa nú sent Vladimir Pútín rússlandsforseta formlega beiðni um aðstoð. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, hefur varað stjórnvöld í Kænugarði við að beita herafli gegn rússneskumælandi íbúum Úkraíu. 40.000 rússneskir hermenn eru nú við landamærin, auk 25 þúsund manna herliðs sem sent var inn á Krímskaga í byrjun mánaðar. Í dag lýsti Turchynov forseti því svo yfir að til greina kæmi að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Úkraínu verður breytt í sambandsríki, samhliða forsetakosningunum 25 maí næstkomandi. Þetta yrði gert til að svara kröfum íbúa í austurhéruðunum sem vilja sameinast Rússlandi. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hélt í gærkvöldi neyðarfund vegna ástandsins í Úkraínu. Þar voru Rússar sakaðir um að hafa hvatt til aðgerða uppreisnarsinna með því að flytja aukið herlið að landamærum Úkraínu en það neita rússnesk yfirvöld alfarið fyrir. Fyrirhugað er að fundur verði haldinn í vikunni með fulltrúum Rússlands, Úkraínu, Bandaríkjanna og Evrópusambandsins og Úkraínu.
Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Fleiri fréttir Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Sjá meira