Íslensk kona í ótrúlegum árekstri í Bandaríkjunum Bjarki Ármannsson skrifar 14. apríl 2014 23:27 Trukkurinn sést hér dreginn út úr byggingunni sem hann klessti á. Mynd/Skjáskot af síðu Herald-Dispatch „
Þetta er engin stórglæpaborg. En maður getur greinilega lent í ýmsu hvar sem er,“ segir Kristín Örnólfsdóttir, íslensk kona búsett í Vestur-Virginíu í Bandaríkjunum. Kristín lenti í því ótrúlega atviki fyrr í dag að nýr bíll hennar laskaðist alvarlega þegar maður á flótta frá lögreglu missti stjórn á trukk sínum og ók honum beint inn á bílaverkstæði. „Ég fór bara með bílinn í sakleysi mínu á dekkjaverkstæði, þurfti að fá tvö ný dekk,“ segir Kristín. Hún heimsótti verslunarmiðstöð hinum megin við götuna á meðan viðgerðinni stóð. „Svo hringja þeir og segja að bíllinn sé tilbúinn og ég fór svona sirka 20-30 mínútum seinna yfir að ná í bílinn. Þá sé ég bara tvo slökkvibíla, tvo sjúkrabíla, fjóra löggubíla og allt brjálað þarna.“ Kristín komst að því eftir á að hringt var á lögreglu vegna manns sem hafði hegðað sér einkennilega í verslunarmiðstöðinni og fyrir utan hana. „Þegar hann sér lögguna koma þá bara stekkur hann upp í rauðan trukk og brunar af stað á brjáluðum hraða,“ segir Kristín. „Hann nær greinilega ekki beygjunni þannig að hann fer inn á bílastæðið þar sem bíllinn minn var, keyrir á hann þannig hann skutlast í burtu og lendir svo bara inni á bílaverkstæðinu. Bara hvarf í gegnum húsið.“Fer hann í gegnum glugga þá?„Nei nei, bara í gegnum vegg. Það er ekki allt steypt hérna í Ameríkunni.“ Hinum megin við vegginn voru söluskrifstofur og þrír starfsmenn að vinnu. Þykir ótrúlegt að þeir hafi sloppið ómeiddir. Enginn slasaðist nema bílstjórinn sem var fluttur burt í haldi lögreglu. „Svo sé ég fyrir mér að ef ég hefði komið kortéri fyrr og kannski verið að borga þá væri ég ekki að tala við þig núna,“ segir Kristín. Hún segir að nýi bíllinn hennar líti mjög illa út eftir áreksturinn en kveðst ánægð að ekki hafi farið verr. „Þetta er nú bara bíll,“ segir hún. Kristín flutti til Vestur-Virginíu í ágúst síðastliðnum ásamt manni sínum. „Við komum frá Ísafirði, það var ekki mikið um eltingaleiki við lögguna þar.“
Mest lesið Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Erlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Innlent „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Innlent Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Erlent Fleiri fréttir Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Sjá meira