Örþrifaráð Rússa virkuðu ekki sem skyldi Jóhann Óli Eiðsson skrifar 18. desember 2014 08:00 Óvissan er gífurleg í Rússlandi og veit fólk ekki hvað skal gera. vísir/ap
Rúblan, gjaldmiðill Rússa, hélt áfram að hríðfalla í verði og hefur hún fallið um tuttugu prósent í vikunni. Þegar verst lét fengust áttatíu rúblur fyrir dollarann en í upphafi árs fengust tæpar 33 rúblur fyrir dollarann. Þegar markaðir lokuðu fengust tæpar sjötíu rúblur fyrir dollarann. Ástæðan fyrir veikingunni er talin vera lækkun á heimsverði olíu. Rússneski seðlabankinn greip til þess ráðs í fyrradag að hækka stýrivexti úr 10,5 prósentum upp í sautján prósent. Aðgerðin skilaði ekki tilætluðum árangri. Seðlabankinn hefur einnig varið stórum hluta af gjaldeyrisforða sínum til að stemma stigu við falli rúblunnar. Erlend fyrirtæki fylgjast með ástandinu. Apple hefur til að mynda hætt netsölu á vörum sínum til landsins. Fyrir þremur vikum hækkaði fyrirtækið verð á iPhone 6 um 25 prósent en eftir að verðið er umreiknað í dollara hefur síminn engu að síður lækkað í verði. Margir íbúar landsins hafa brugðið á það ráð að hamstra vörur áður en verð á þeim hækkar enn frekar. Þeirra á meðal er Elena, 36 ára stjórnandi fyrirtækis í Moskvu, en í síðustu viku keypti hún ríflega þrjátíu kíló af kjötvöru, tíu kíló af hveiti og mjöli auk fatnaðar og snyrtivara. Óvissan í landinu er gífurleg. Óvíst er hvert næsta skref Vladimirs Pútín verður en líklegt þykir að Rússar muni grípa til þess ráðs að selja hluta gullforða síns.
Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Erlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Sjá meira