Heiðra minningu rokkara í afmælisveislu Gunnar Leó Pálsson skrifar 18. desember 2014 10:15 Stóns, sem leikur lög Rolling Stones, heldur upp á 71 árs afmæli gítarleikarans Keith Richards. mynd/Pétur Geir Zeranico „
Þetta verður bæði skemmtilegasta afmælisveisla ársins og líka fallegasta minningarathöfn ársins,“ segir Björn Stefánsson í gervi Micks Jagger. Hann og hljómsveitin hans, Stóns, sem leikur lög Rolling Stones, heldur upp á 71 árs afmæli gítarleikarans Keith Richards í kvöld en að sama skapi ætla þeir félagar að heiðra minningu saxófónleikarans Bobbys Keys sem féll frá fyrir skömmu. „Bobby Keys átti sama afmælisdag og Keith, 18. desember, og á því vel við að heiðra minningu hans,“ segir Bjössi.Jens Hansson bregður sér í líki Bobbys Keys á tónleikunum í kvöld. Jens sá Keys á tónleikum á Parken árið 2005.Mynd/Daníel, Getty„Hann var fastur meðlimur í bandinu og spilaði inn á plötur og á tónleikum með þeim, eða þangað til að Keith Richards þurfti að láta hann fara úr bandinu, því Keys hafði þá fyllt baðkar af mjög dýru kampavíni og ekki mætt út á flugvöll í kjölfarið. Hann var bara með grúppíu í kampavínsbaði, sem hann hafði eytt öllum sínum launum í. Hann kom svo aftur inn í bandið en Keith segir að hann hafi verið sinn besti vinur,“ útskýrir Bjössi. Þess má til gamans geta að Bobby og Keith er einnig fæddir sama ár, 1943. Jens Hansson bregður sér í líki Bobbys Keys á tónleikunum. „Ég sá Bobby „live“ árið 2005 á Parken og hann stóð sig eins og hetja. Hann hélt alltaf uppi heiðri rokksaxófónleikaranna, það er einmitt það sem ég hef reynt að gera hér á landi, að halda uppi heiðri rokksaxófónleikaranna, við eigum það sameiginlegt,“ segir Jens, sem er mjög spenntur fyrir tónleikunum. Tónleikarnir verða á Gauknum í kvöld klukkan 21.00.
Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bíó og sjónvarp „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira