Eigum að geta unnið Dani Tómas Þór Þórðarson skrifar 14. júní 2014 07:00 Sara Björk Gunnarsdóttir og stelpurnar okkar þurfa sigur í Danmörku á sunnudaginn. Fréttablaðið/afp „
Æfingarnar eru búnar að vera góðar hérna og það er mikil spenna fyrir leiknum,“ segir Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, í samtali við Fréttablaðið um leikinn gegn Dönum í undankeppni HM 2015 sem fram fer klukkan 11.00 ytra á sunnudagsmorgun. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir stelpurnar í baráttunni um annað sætið í riðlinum sem gæti á endanum gefið sæti í umspili um farseðil á HM. Fyrsta sætið er ekki lengur möguleiki þar sem Sviss er með 19 stig, tíu stigum meira en Ísland, og Ísrael er óvænt í öðru sæti. Danir eru í þriðja sæti með fimm stig. „Danska liðið er mjög sterkt. Við höfum spilað við þær áður og bæði unnið og tapað. Þær eru rosalega góðar að halda boltanum sem er þeirra styrkleiki. Þetta er samt lið sem við getum unnið,“ segir Sara Björk.Þurfa sigur Alla jafna væri jafntefli við Danmörku á útivelli ekki slæm úrslit en þar sem Ísland þarf að safna nóg af stigum er sigur þýðingarmikill á sunnudaginn. „Við þurfum þrjú stig og með réttri leikaðferð og réttri pressu þannig að við lokum á þær, þá getum við skorað á þær og unnið leikinn,“ segir Sara Björk sem hefur fulla trú á verkefninu. „Við höldum áfram að trúa á að HM-draumurinn lifi en til þess að hann haldi áfram að lifa verðum við að fá þrjú stig. Það er lykilatriði í þessu að allur hópurinn hafi fulla trú á að við getum unnið Dani á sunnudaginn. Það hefur verið draumur okkar allra svo lengi að komast á HM. Við viljum virkilega komast þangað.“Engin betri en Þóra Sara Björk er fyrirliði sænska meistaraliðsins Rosengård þar sem hún spilar með Þóru B. Helgadóttur landsliðsmarkverði. Þóra er á leið heim til Fylkis í Pepsi-deildinni en erfitt verður að fylla hennar skarð hjá sænska liðinu. „Þú færð ekkert betri markvörð en Þóru. Það hafa verið forréttindi að æfa og spila með henni því hún er einfaldlega besti markvörður heims í dag,“ segir Sara um markvörðinn. „Það er virkilega sárt að missa hana úr liðinu og eftirmaður hennar þarf að feta í stór fótspor. Það sem skiptir máli er að hún er ánægð með þetta.“
Fótbolti Mest lesið Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Fótbolti Martraðarvítaspyrnukeppni og lærisveinar Sigga Ragga úr leik Fótbolti Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Enski boltinn Hollendingar hjálpa Frökkum við að halda Ólympíuleikana Sport Hefur komið Eiði Smára skemmtilega á óvart við HM Fótbolti „VAR fór í kaffi“ til að hjálpa „heppnum“ Englendingum Fótbolti Pólitískar skoðanir ráða miklu um hvort fólk elskar Messi eða Ronaldo Fótbolti Mikil upplifun fyrir fólkið í bænum að mæta Man. Utd Fótbolti Allt í steik hjá Senegal: Óánægja með kokkinn og ógreiddir bónusar Fótbolti Segja Breka á leiðinni til Benfica Handbolti Fleiri fréttir Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Martraðarvítaspyrnukeppni og lærisveinar Sigga Ragga úr leik Thelma hetjan og Häcken á toppinn Sviss tryggði sér toppsætið eftir sigur á Kanada Hörð keppni milli Margrétar Láru og Mistar Bruno um Ronaldo: „Mikilvægt fyrir okkur að hann skoraði“ Ronaldinho tók skóna af hillunni eftir níu ár: „Við munum gera eitthvað sérstakt“ Hefur komið Eiði Smára skemmtilega á óvart við HM Mikil upplifun fyrir fólkið í bænum að mæta Man. Utd Ancelotti staðfesti að hann getur notað Neymar í fyrsta sinn í kvöld „VAR fór í kaffi“ til að hjálpa „heppnum“ Englendingum „Alfreð er æðsti klerkur þar“ Liðsfélagi Fanneyjar og Thelmu verður sú dýrasta í sögunni Maður dagsins á HM: „Ég er mættur aftur“ Orðrómur um Val borinn undir Eið Smára í beinni Pólitískar skoðanir ráða miklu um hvort fólk elskar Messi eða Ronaldo Forseti FIFA vill drykkjarhlé hér eftir á öllum heimsmeistaramótum Allt í steik hjá Senegal: Óánægja með kokkinn og ógreiddir bónusar Varnarjaxl og varamaður tryggðu sínum þjóðum nauma sigra í nótt Bandaríkin hjálpa Írönum fyrir næsta leik á HM „Eru allir í bústað klukkan sex á sunnudegi?“ Trump mætir á úrslitaleikinn og afhendir bikarinn Varnarmúr Gana hélt gegn Englandi Guðni: Ekki á vísan að róa ef nýtingin er svona slök Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Víkingur 1-1 | Jafnt suður með sjó Uppgjör: FH - Valur 1-1 | FH mistókst að komast á toppinn Kominn með nýtt starf eftir að hafa mistekist að koma Ítalíu á HM Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Sjá meira