Erlent

Fundu lík 53 manna í Írak

Atli Ísleifsson skrifar
Mennirnir höfðu verið bundnir fyrir augun og síðan myrtir líkt og um fjöldaaftöku hafi verið að ræða.
Mennirnir höfðu verið bundnir fyrir augun og síðan myrtir líkt og um fjöldaaftöku hafi verið að ræða. Vísir/AFP
Íraskar öryggissveitir hafa fundið lík 53 manna í garði í borginni Hilla, um 100 kílómetra suður af höfuðborginni Bagdad. Talsmenn yfirvalda segja mennina hafa verið bundnir og síðar myrtir líkt og um fjöldaaftöku væri að ræða. Höfðu þeir verið með bundið fyrir augun, bundnir á höndum og skotsár bæði á höfði og bringu.

Á vef SvD segir að starfsmaður á líkhúsi í borginni telji að fórnarlömbin hafi látist fyrir minnst einni viku síðan, en rannsókn málsins stendur nú yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×