Norræni varnarmúrinn hjá Krasnodar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. ágúst 2014 10:56 Ragnar Sigurðsson hefur staðið sig vel í upphafi tímabils. Vísir/Getty
Íslenski landsliðsmaðurinn Ragnar Sigurðsson og félagar hans í FC Krasnodar hafa byrjað vel í rússnesku úrvalsdeildinni í fótbolta. Liðið situr sem stendur í 5. sæti með átta stig eftir fjórar umferðir. Sterkur varnarleikur hefur verið lykillinn að þessu góða gengi Krasnodar, en liðið hefur aðeins fengið á sig eitt mark í leikjunum fjórum. Reyndar sluppu Krasnodar-menn vel gegn FK Rostov í gær, en Andrei Sinitsyn, markvörður liðsins, varði tvær vítaspyrnur í leiknum.Ragnar Sigurðsson hefur leikið alla fjóra leikina í miðri vörn Krasnodar, við hlið Svíans Andreas Granqvist. Sá er reyndur kappi sem hefur leikið með Helsingborg, Wigan Athletic, Groningen og Genoa á ferlinum. Þá hefur Granqvist leikið 34 landsleiki og skorað tvö mörk fyrir sænska landsliðið. Krasnodar hefur haldið hreinu gegn FC Rostov, Spartak Moskvu og Lokomotiv Moskvu, en eina markið sem liðið hefur fengið á sig kom gegn Sölva Geir Ottesen og félögum hans í FC Ural. Sé litið á tölfræði Krasnodar samkvæmt heimasíðunni WhoScored, þá kemur í ljós að liðið stöðvar sóknir mótherjanna (e. interceptions) oftast allra liða í deildinni, eða 23 sinnum að meðaltali í leik. Þá á Krasnodar á 20,3 tæklingar að meðaltali í leik, sem er það sjötta mesta í deildinni, og liðið er einnig í sjötta sæti yfir fæst skot fengin á sig að meðaltali í leik (11,8). Ragnar er einn af hæstu leikmönnum Krasnodar í einkunnagjöf WhoScored, en fréttaritarar síðunnar gefa leikmönnum einkunn sem er byggð á ýmsum tölfræðiþáttum. Meðaltalseinkunn Ragnars er 7,27, en íslenski varnarmaðurinn er með 1,5 tæklingu, stöðvar þrjár sóknir og hreinsar boltann fjórum sinnum frá eigin marki að meðaltali í leik, auk þess sem hann kemst einu sinni fyrir skot andstæðinganna. Granqvist félagi hans er með 7,17 að meðaltali í einkunn. Svíinn er með eina tæklingu, stöðvar 3,5 sóknir og er með 5,5 hreinsanir að meðaltali í leik. Framundan eru tveir leikir hjá Ragnari og félögum gegn liðum frá höfuðborginni, Torpedo (24. ágúst) og Dinamo Moskvu (31. ágúst).
Fótbolti Tengdar fréttir Ragnar og félagar héldu hreinu Ragnar Sigurðsson og félagar í vörn FC Krasnodar héldu hreinu í kvöld þegar liðið vann FK Rostov. 17. ágúst 2014 19:05 Ragnar og félagar héldu hreinu Ragnar Sigurðsson stóð fyrir sínu í vörn FC Krasnodar. 3. ágúst 2014 19:50 Jafnt í Íslendingaslag í Rússlandi FC Ural og FC Krasnodar skildu jöfn með einu marki gegn einu í Íslendingaslag í 2. umferð rússnesku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. 10. ágúst 2014 14:19 Mest lesið „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Vignir Vatnar sneri upp á Evrópumeistara Sport Tyrkneska hlaupatilraunin mistókst Sport Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa Fótbolti Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Búningsklefi FC Basel eyðilagðist í bruna Al Hilal ekki lengur í eigu ríkissjóðsins Vonar að Wood sé ekki alvarlega meiddur Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Messi keypti spænskt fótboltafélag Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Forest sló tíu Porto-menn út og mætir Villa í undanúrslitum NSÍ Runavík heldur áfram góðri byrjun undir stjórn Sigga Ragga Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda „Hann mun líklega missa starfið, án þess að eiga það skilið“ Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Messi lögsóttur fyrir að spila ekki vináttuleik Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Freyr fær fríspil á meðan hörð átök geysa utan vallar hjá Brann Leikmenn Arsenal völdu Rice sem fyrirliða Infantino fullviss um að Íran muni spila á HM Átti Camavinga skilið spjald? „Ekki eins og hann taki boltann og negli honum í burtu“ Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real „Ég get ekki breytt þessu“ Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Þú ert farinn að verða þybbinn“ „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Sjá meira
Ragnar og félagar héldu hreinu Ragnar Sigurðsson og félagar í vörn FC Krasnodar héldu hreinu í kvöld þegar liðið vann FK Rostov. 17. ágúst 2014 19:05
Ragnar og félagar héldu hreinu Ragnar Sigurðsson stóð fyrir sínu í vörn FC Krasnodar. 3. ágúst 2014 19:50
Jafnt í Íslendingaslag í Rússlandi FC Ural og FC Krasnodar skildu jöfn með einu marki gegn einu í Íslendingaslag í 2. umferð rússnesku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. 10. ágúst 2014 14:19