Erlent

Frjáls eftir 19 ár á dauðadeild

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/AP
Embættismenn í Nígeríu segjast hafa sleppt manni sem hafði verið á dauðadeild þar í landi í 19 ár. Til stóð að hengja manninn í júní í fyrra, en hætt var við aftökuna á síðustu stundu. Búið var að hengja fjóra menn þegar starfsmenn fangelsisins sem hann var í áttuðu sig á því að það átti ekki að hengja manninn. Það átti að leiða hann fyrir aftökusveit.

AP fréttaveitan segir ástæðu þess að hinn 54 ára Thankgod Ebhos hafi átt að vera skotin vera að hann hafi verið dæmdur af herdómstól.

Mannréttindalögfræðingar lögðu þó fram áfrýjun á forsendum þess að hann hafi verið dæmdur á tímum einræði í Nígeríu. Dómstólar hafi verið þekktir fyrir ósanngjörn réttarhöld og pyntingar á föngum.

Honum var sleppt úr haldi á föstudaginn af mannúðarástæðum. Í Nígeríu eru þó 1.039 manns á dauðadeild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×