Selur meydóm sinn á netinu: Hefur fengið tilboð upp á 61 milljón Kjartan Atli Kjartansson skrifar 29. apríl 2014 10:43 Raine er ljóshærð og tuttugu og sjö ára gömul.
Læknaneminn Elizabeth Raine fer nýstárlegar leiðir til þess að fjármagna dýrt nám. Fyrir fjórum vikum síðan stofnaði hún heimasíðu með þeim tilgangi að bjóða upp meydóm sinn. Síðan hefur heldur betur slegið í gegn. Hæsta boðið í meydóm Raine hljóðar upp á rúma 61 milljón króna. Tilboðin hafa borist víða að. Menn frá Serbíu, Bandaríkjunum, Bretlandi, Japan og Ástralíu hafa boðið háar fjárhæðir til þess að vera þeir fyrstu sem Raine sefur hjá. Bara að taka þátt í uppboðinu kostar um 12 þúsund krónur og þurfa þeir sem bjóða að fá staðfest frá lækni að þeir séu ekki með neina kynsjúkdóma.Raine birtir fjöldamargar myndir af sjálfri sér á vefsíðu sinni.Forðast bandarísk lög Raine, sem er 27 ára gömul, heldur uppboðið í samstarfi við átralskan umboðsmann og hýsir vefsíðuna þar í landi. Með því forðast hún bandarísk lög. Í fyrstu huldi Raine andlit sitt af hræðslu við að vera rekin úr skólanum sem hún nemur við. En í vikunni ákvað hún að stíga fram, eftir að einhverjir höfðu efast um að henni væri alvara með uppboðið. Raine segist hafa BA-gráðu í bæði verkfræði og líffræði. Á vefsíðu hennar kemur fram að hún sé 178 sentímetrar á hæð og vegi 59 kíló.Missti móður sína tíu ára Hin bandaríska Raine fluttist með foreldrum sínum til Sádí Arabíu, þegar hún var ung að aldri. Faðir hennar starfaði í olíugeiranum þar í landi. Hún segist halda uppboðið til þess að græða peninga fyrst og fremst, en nefnir einnig að henni þyki þetta vera ævintýri. Hún segist einnig ánægð að geta haft áhrif á gildismat fólks og finnst eftirsóknarvert að storka við venjum og hefðum. Hún hefur verið spurð af hverju hún sé enn hrein mey, tuttugu og sjö ára gömul. „Ég hef alltaf haft mikið að gera. Ég hef aldrei fundið þann rétta og strákar hafa aldrei verið í forgangi í mínu lífi. Raine segist ekki útiloka að eittvað meira en bara kynlíf komi út úr uppboðinu. „Ég útiloka ekki að ég finni ástina. En samt finnst mér það afar ólíklegt.“
Mest lesið Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Erlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Innlent „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Innlent Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Erlent Fleiri fréttir Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Sjá meira