Milljónir innflytjenda fá atvinnuleyfi Guðsteinn Bjarnason skrifar 22. nóvember 2014 07:00 Barack Obama kynnir aðgerðir sínar í innflytjendamálum í sjónvarpsávarpi úr Hvíta húsinu í fyrrinótt. Vísir/AP
Barack Obama Bandaríkjaforseti gladdi hjörtu nærri fimm milljóna innflytjenda með því að gera þeim kleift að fá atvinnuleyfi í Bandaríkjunum þrátt fyrir að dveljast þar ólöglega. Jafnframt hrelldi hann andstæðinga sína í Repúblikanaflokknum, sem leita nú allra leiða til þess að ógilda ákvörðunina. Obama hefur árum saman reynt að fá Bandaríkjaþing til þess að samþykkja víðtækar breytingar á innflytjendalöggjöf landsins. Öldungadeildin, þar sem flokksbræður hans hafa verið í meirihluta, hefur samþykkt frumvarp um það, en repúblikanar, sem eru í meirihluta í fulltrúadeildinni, hafa ekki viljað vera með. Innflytjendur og baráttufólk fyrir réttindum þeirra hafa ákaft fagnað ákvörðun forsetans, sem kynnt var fyrirvaralítið í fyrrinótt. Efnahagsráðgjafar forsetans fullyrða að þessar aðgerðir muni hafa margvísleg jákvæð áhrif á efnahagslíf landsins, meðal annars muni meðallaun hækka í kjölfarið. Repúblikanar brugðust hins vegar ókvæða við og segja ákvörðun forsetans ólöglega, þar sem þetta sé einhliða ákvörðun hans en ekki þingsins. Áhrifamenn í Repúblikanaflokknum eru að íhuga að fara í mál fyrir dómstólum gegn ákvörðun forsetans. Repúblikaninn John Boehner, sem er þingforseti neðri deildar Bandaríkjaþings, sagði að forsetinn væri „vísvitandi að eyðileggja alla möguleika á því að ná fram samkomulagi beggja flokka um endurbæturnar, sem hann segist vilja gera“. Jafnframt sagði hann að þingið myndi „ekki sitja aðgerðarlaust hjá á meðan forsetinn grefur undan réttarríkinu“. Ákvörðun Bandaríkjaforseta nær til nærri fimm milljóna manna í heildina, sem nú fá atvinnuleyfi og þurfa ekki að óttast að verða reknir úr landi lengur. Þar munar mest um 4,1 milljón foreldra, sem dveljast ólöglega í Bandaríkjunum en hafa búið þar í fimm ár eða lengur og eignast þar börn, sem þar með eru bandarískir ríkisborgarar eða hafa varanlegt dvalarleyfi þar. Breytir þá engu hvort börnin eru komin á fullorðinsaldur. Nýju reglurnar gilda einnig um fólk, sem kom ólöglega til Bandaríkjanna á barnsaldri. Auk þess verður erfiðara en nú er að reka fólk úr landi, þótt það hafi komið ólöglega til landsins.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Sjá meira