Barninu líkt við fórnarlömb Auschwitz Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 22. nóvember 2014 20:18 Börn í fangabúðunum í Auschwitz. Vísir/Getty
Fjögurra mánaða gömul stúlka, sem fannst látin á heimili sínu í Tower Hamlets-hverfinu í London, var svo vannærð að hún minnti sjúkraflutningamenn á fórnarlömb úr Auschwitz-fangabúðum nasista. Stúlkan fannst í október í fyrra en móðir hennar hefur játað vanrækslu og það að vera valdur að dauða hennar. Í frétt BBC kemur fram að sjúkraflutningamenn lýstu því við yfirheyrslur að stúlkan hefði verið mjög vannærð. Hún hafi farið þar af leiðandi verið alltof létt og þjáðst af ofþornun. Stúlkan hafi einnig verið mjög föl og augu hennar djúpt sokkin inn í höfuðkúpuna. Móðir stúlkunnar er frá Sómalíu. Farið var með hana þangað frá Bretlandi þegar hún var unglingur og hún látin giftast manni í heimalandi sínu. Starfsmenn breska utanríkisráðuneytisins í Sómalíu hjálpuðu konunni svo að flýja aftur til Bretlands og tveimur árum síðar sneri hún aftur þangað, þá ólétt af dóttur sinni. Við yfirheyrslur kom fram að konan hefði glímt við alvarleg andleg veikindi stuttu fyrir andlát dóttur sinnar. Félagsmálayfirvöld hafa meðal annars sætt gagnrýni vegna málsins fyrir að fylgjast ekki nógu náið með konunni eftir að hún kom aftur til Bretlands frá Sómalíu. Öllum hefði mátt vera ljóst að hún byggi við erfiðar félagslegar aðstæður.
Mest lesið Keyrði inn í hvítan vegg: „Í besta falli vítavert gáleysi“ Innlent Þrautaganga Ingva og fjölskyldu: Svefnleysi, bræðiköst og flogveiki en engin úrræði Innlent „Ætluðum við að gera þetta núna?“ Innlent Lögreglustjóri tilkynntur fyrir ofbeldi og áreitni á þorrablóti Innlent Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Erlent Þurfi að draga úr ofbeldi gegn eldri borgurum Innlent Geti átt í samstarfi við nær alla flokka Innlent Tína rusl til að komast á Reyki Innlent Rúta lenti utan vegar Innlent Trausti vill snúa aftur Innlent Fleiri fréttir Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Nick Reiner segist saklaus af því að hafa myrt foreldra sína Áhrif stóraukins geimrusls á lofthjúpinn óþekkt Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Samþykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs Sendiherra sem missti stöðuna vegna tengsla við Epstein handtekinn Hundruð milljarða í að verja strandir fyrir ágangi sjávar Yngsti forsætisráðherrann sór embættiseið Norðaustan stórhríð hrellir íbúa austurstrandar Bandaríkjanna Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Sjá meira