Tvítugur bróðir barnanna kom að þeim látnum Guðsteinn Bjarnason skrifar 20. desember 2014 08:15 Lögreglan lokaði svæðið af og hafði mikinn viðbúnað. vísir/ap
Átta látin börn og illa særð móðir sjö þeirra fundust á heimili í borginni Cairns í Queensland-ríki Ástralíu. Yngsta barnið var 18 mánaða gamalt en hið elsta fimmtán ára. Áttunda barnið var skyldmenni þeirra. Það var tvítugur bróðir systkinanna sjö sem kom að þeim. Móðirin var sögð þungt haldin af stungusárum en lögreglan lét ekkert uppi um það hvernig dauða barnanna hefði borið að höndum. Móðirin var flutt á sjúkrahús og var ástand hennar sagt stöðugt. Síðdegis í gær var hún orðin nógu hress til að geta aðstoðað lögregluna við að varpa ljósi á málið. Lögreglan vildi heldur ekkert gefa upp um það hver væri grunaður um voðaverkið. Samt tók lögreglan skýrt fram að nágrannar eða aðrir í Ástralíu þyrftu ekki að hafa neinar áhyggjur af því að morðinginn léki lausum hala. Enginn væri í hættu staddur. „Sem stendur er engin ástæða fyrir almenning til að hafa áhyggjur af þessu, fyrir utan þá staðreynd að þetta er afar sorglegur atburður,“ hafði AP-fréttastofan eftir Bruno Asnicar rannsóknarlögreglumanni.Nálægt húsinu var fólk byrjað að skilja eftir blómvendi til minningar um börnin.vísir/afpÞað var Lisa Thaydai, skyldmenni fjölskyldunnar, sem skýrði fjölmiðlum frá því að það hefði verið tvítugi bróðirinn sem kom að börnunum látnum og móður sinni með veiku lífsmarki. „Ég ætla að fara að tala við hann núna, hann þarf á hughreystingu að halda,“ sagði hún. „Við erum stór fjölskylda. Ég trúi þessu bara ekki.“ Tugir lögreglumanna unnu að rannsókn málsins á heimili fjölskyldunnar fram eftir degi í gær. Fjöldi nágranna stóð við lokunarborða lögreglunnar, sem strengdir voru yfir götuna, og fylgdist með því sem fram fór. Margir voru með tárin í augunum. „Þessir atburðir hafa vitaskuld skelfileg áhrif á alla og lögreglumenn eru þar ekkert undanskildir – við erum mannlegir líka,“ sagði Ascinar. Þessi harmleikur verður örfáum dögum eftir að vopnaður maður tók átján kaffihúsagesti í gíslingu í Sydney og hélt þeim þar flestum í sextán klukkustundir. Tveir gíslanna létu lífið og gíslatökumaðurinn sömuleiðis. „Fréttirnar frá Cairns eru átakanlegar,“ sagði Tony Abbott forsætisráðherra í yfirlýsingu. „Þetta er ólýsanlegur glæpur. Þetta eru erfiðir dagar fyrir landið okkar.“
Mest lesið Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Erlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Veður Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Innlent Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Innlent Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Innlent Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Innlent Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Erlent Fleiri fréttir Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra Sjá meira