Farsímar hleraðir á Norðurlöndunum Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 20. desember 2014 07:30 Fjöldi falskra móðurstöðva hefur fundist á Norðurlöndunum
Umfangsmiklar hleranir á farsímum hafa verið afhjúpaðar í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi að undanförnu. Sérfræðingar í Noregi telja að fölsku móðurstöðvarnar sem flytja símtöl úr farsímum við stjórnarráðið og þinghúsið í Ósló, sem dagblaðið Aftenposten hefur afhjúpað, séu á vegum erlendra leyniþjónusta. Norska leyniþjónustan hefur ekki viljað nefna nein lönd en norskur sérfræðingur hefur áður sagt að mögulega sé um að ræða leyniþjónustur Kína og Rússlands. Mælingar á vegum Dagens Nyheter í Svíþjóð gefa til kynna að falskar móðurstöðvar séu fyrir utan stjórnarráðið í Stokkhólmi. Tímaritið Ny Teknik greinir frá því að sænska lögreglan noti sjálf falskar móðurstöðvar. Lögregluyfirvöld í Svíþjóð vilja ekki tjá sig um hvort slíkar séu við stjórnarráðið. Samkvæmt frásögn Ny Teknik hefur lögreglan í Svíþjóð notað falskar móðurstöðvar um árabil í baráttunni gegn glæpum. Upplýsingastjóri finnsku öryggislögreglunnar, Jyri Rantala, segir í viðtali við finnska ríkisútvarpið að erlend ríki kunni að hafa hlerað farsíma í Finnlandi með fölskum móðurstöðvum. Haft er eftir Rantala að njósnir séu daglegt brauð í Finnlandi og að notast sé við ýmiss konar tækni. Hann vill ekki ræða hverjir kunna að vera að verki því að þá afhjúpi hann í leiðinni aðferðir finnsku öryggislögreglunnar. Rantala hvetur Finna til að vera varkára og tala ekki um viðkvæm eða leynileg mál í farsíma.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Fleiri fréttir Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Sjá meira