Auðveldasta jóladagskrá í sögu ensku úrvalsdeildarinnar? Henry Birgir Gunnarsson skrifar 18. desember 2014 06:00 Pellegrini ætti að geta brosað í byrjun nýs árs ef allt verður eðlilegt. Vísir/Getty
Manuel Pellegrini, stjóri Man. City, þarf nú ekkert að fara á taugum þó svo hans lið verði án Argentínumannsins Sergio Aguero og fleiri góðra leikmanna í jólatörninni erfiðu sem fram undan er í ensku úrvalsdeildinni. Venjulega lenda stóru liðin í því að mæta öðrum liðum í toppbaráttunni um jólin en það er óhætt að segja að það sé langt síðan lið fékk eins auðvelda dagskrá og bíður Man. City um jólin. Tala menn um að þetta sé jafnvel auðveldasta jóladagskrá toppliðs í sögu úrvalsdeildarinnar. Törnin byrjar um helgina og liðin fjögur sem bíða Man. City sitja í 14., 15., 16. og 17. sæti deildarinnar. Það verður að teljast ótrúlega vel sloppið og sérstaklega þar sem City á þrjá af þessum leikjum á heimavelli. City er síðan nýbúið að spila við botnlið deildarinnar, Leicester, og hafði þar 0-1 sigur gegn botnliðinu. Þrátt fyrir það sér Pellegrini ástæðu til þess að kvarta yfir leikjaálaginu en það hefur aðeins farið í taugarnar á honum að fyrir utan Aguero hafa þeir Stevan Jovetic og Edin Dzeko líka meiðst og verða eitthvað fjarverandi. „Í fyrra spiluðum við níu leiki í desember og níu í janúar. Það er erfitt halda dampi í slíku álagi. Ég skil að leikirnir á annan í jólum skipti fólkið hér máli en ég skil ekki af hverju það er spilað 28. desember og 1. janúar,“ sagði Pellegrini pirraður. Hann verður kannski ekki eins pirraður ef hann fær tólf punkta úr næstu fjórum leikjum.
Enski boltinn Mest lesið Hver verður fljótastur að hlaupa míluna? Sport Skaðbrenndur Hemmi fer ekki aftur í eldhúsið Íslenski boltinn Lygileg níu marka veisla í París Fótbolti Gerði umdeilda skiptingu: „100 prósent pirraður og ég skil hann vel“ Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍBV - Haukar 36-31 | Eyjakonur tryggðu sér sæti í úrslitum Handbolti Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Enski boltinn Stjörnurnar fá frí gegn Egyptum Handbolti Frank Booker fer yfir hnéskeljarbrotið: „Löppin bara hékk á eftir mér“ Körfubolti Illa farið með Þórsara: „Þetta er bara rangt“ Íslenski boltinn Reglum um gul spjöld á HM verði breytt Fótbolti Fleiri fréttir Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Sjá meira