Ljóti andarunginn hjá Spurs varð að fallegum svani í Swansea Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. desember 2014 08:00 Gylfi Þór Sigurðsson skoraði sigurmark Swansea gegn Manchester United í sínum fyrsta leik með félaginu eftir að hann sneri til baka og hefur síðan þá ekki litið um öxl. vísir/GETTY „
Þetta snýst ekki um hvernig ég spila gegn Tottenham. Þetta snýst um hvernig ég spila fyrir Swansea allt tímabilið. Það er það sem hvetur mig áfram,“ sagði hinn hógværi Gylfi Þór Sigurðsson í viðtali við enska fjölmiðla fyrir leik sinna manna í Swansea gegn Tottenham á Liberty Stadium á sunnudag. „Það er markmið mitt að vinna alla leiki – hvort sem það er gegn liðum sem ég hef áður spilað með eða ekki.“ Ummæli Gylfa Þórs koma ekki á óvart enda velur hann orð sín vel í viðtölum við fjölmiðla, hvort sem er hérlendis eða í Englandi. Hann lætur verkin tala inni á vellinum og skilaboðin sem hann hefur sent Tottenham í haust eru skýr – „þið létuð mig spila í rangri stöðu“. Gylfi hefur áður sagt að hann hafi aldrei verið hrifinn af því að spila á vinstri kantinum, líkt og hann gerði svo oft hjá Tottenham. Hann nýtur sín á miðjunni, helst fyrir aftan fremsta sóknarmann, enda hefur samvinna hans við Wilfried Bony verið eitruð á fyrstu mánuðum tímabilsins. Gylfi hefur lagt upp alls átta mörk í haust, þar af mörg fyrir Bony sem er markahæsti leikmaður Swansea með sjö mörk. Það er sama hvaða tölfræði er skoðuð þegar frammistaða Gylfa hjá Tottenham er borin saman við frammistöðu hans hjá Swansea. Velska félagið hefur vinninginn í öllum þáttum. Mest áberandi er að Gylfi hefur á tveimur hálfum tímabilum (vorið 2012 og haustið 2014) átt þátt í fleiri mörkum (tíu í bæði skiptin) en á hvoru tímabilinu hans hjá Tottenham (sjö í fyrra skiptið, fimm í það síðara).vísir/gettyGylfi Þór hefur verið byrjunarliðsmaður í öllum fimmtán deildarleikjum Swansea til þessa í ár og þarf bara þrettán mínútur á sunnudag til að komast yfir þann mínútufjölda sem hann náði með Tottenham í fyrra. Gylfi er þegar búinn að slá við mínútufjölda fyrra tímabils síns í Lundúnum. Hann hefur blómstrað á miðjunni hjá Swansea og gefið næstflestar stoðsendingar allra leikmanna í ensku úrvalsdeildinni í ár (átta talsins) en aðeins Cesc Fabregas hefur gefið fleiri (ellefu). Lykillinn að öllu saman er að Gylfi er að spila í sinni stöðu. Stöðunni sem hann fékk aðeins að spila í sex byrjunarliðsleikjum af 26 alls á árunum tveimur hjá Tottenham. Enda mátti sjá á samfélagsmiðlum eftir flutning Gylfa í suðurhluta Wales í sumar að margir stuðningsmanna Tottenham sáu eftir honum. En forráðamönnum liðsins má vera nú ljóst að Gylfi var á þeim árum sem hann var í Lundúnum vannýttur.grafík/fréttablaðiðÞað má hins vegar ekki gera lítið úr þeirri staðreynd að Gylfi fékk dýrmæta reynslu af því að spila í stórum leikjum, svo sem Lundúnarslag gegn Arsenal, og í Evrópukeppni. Þá æfði hann og spilaði með mörgum gríðarlega öflugum leikmönnum, þeirra á meðal Gareth Bale sem nú er á mála hjá Real Madrid. „Þetta var tími sem ég naut virkilega, þrátt fyrir að það hafi líka verið nokkrir erfiðir mánuðir. Stundum er breytinga þörf í fótboltanum. Ég breytti til og er ánægður,“ sagði Gylfi. Fá lið hafa verið betri á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni en Swansea, þrátt fyrir að hafa tapað síðustur leikjum sínum á Liberty Stadium. Liðið byrjaði tímabilið frábærlega en hefur verið að færast niður töfluna í síðustu leikjum. Gylfi og félagar hans eru þó í áttunda sæti og því engin ástæða til að örvænta enn. Sigur á Tottenham væri þó kærkominn og myndi sjálfsagt kæta okkar mann sérstaklega, þótt hann myndi sennilega ekki viðurkenna það opinberlega.
Enski boltinn Mest lesið „Allt of margir leikmenn sem þurfa að stíga upp“ Handbolti Isak í hópnum í París Enski boltinn Sveindís fyrst til að hljóta verðlaun vestanhafs Fótbolti Fimm ensk lið í Meistaradeildinni á næsta ári Enski boltinn Úti er ævintýri hjá Völsungi Fótbolti Goðsögn fallin frá Fótbolti Bayern hafði betur í skemmtilegum leik Fótbolti Havertz hetjan í steindauðri skák Fótbolti „Mér finnst ég alltaf koma með orku í liðið“ Sport Keflvíkingur keppti í Squid Game Íslenski boltinn Fleiri fréttir Isak í hópnum í París Fimm ensk lið í Meistaradeildinni á næsta ári Manchester United nýtir fríið til að fara í æfingaferð til Írlands „Finnur fyrir metnaðinum og möguleikunum“ Sleppur við bann eftir að hafa hrint dómara: „Algjör vanvirðing“ Tekur skóna af hillunni fyrir gamlingjabolta á Englandi Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Van Dijk segir að Liverpool hafi gefist upp gegn City Hetja Leeds: „Þetta eru töfrar bikarsins“ Fá City eftir að hafa slegið Arsenal út Leeds í undanúrslit í fyrsta sinn í 39 ár eftir ótrúlega dramatík Skytturnar úr leik: Dýrlingarnir sýndu Arsenal enga miskunn Chelsea flaug áfram í undanúrslit Szoboszlai svekktur: „Hugarfarið var ekki nógu gott“ Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Mo Salah fékk ráð frá Steven Gerrard Isak gæti spilað á móti Man City um helgina og Salah er heill Enzo Fernandez verður í agabanni í næstu tveimur leikjum Chelsea Vill vera lengi hjá „stórliðinu“ Tottenham Hraunar yfir Enzo: „Farðu í burtu“ Manchester United ferðast um Norðurlöndin í sumar Isak fær að æfa með liðsfélögunum aftur Onana fær mun hærri laun ef Man. United kemst í Meistaradeildina Chelsea setti nýtt met í taprekstri Nýr stjóri Tottenham ekki velkominn hjá stuðningsmönnunum De Zerbi tekinn við Tottenham Heimsmeistara býðst að aðstoða De Zerbi Starf Howe í hættu De Zerbi opinn fyrir því að taka strax við Tottenham Sjá meira