Afganskar hersveitir taka við af NATO Guðsteinn Bjarnason skrifar 9. desember 2014 07:00 Efnt var til hátíðlegrar athafnar á flugvellinum í Kabúl í gær. fréttablaðið/AP
Fjölþjóðalið Atlantshafsbandalagsins í Afganistan er hætt að taka þátt í hernaðarátökum þar í landi, þótt áfram verði 13 þúsund manna lið þar á vegum NATO og Bandaríkjanna. Afganski herinn á nú að taka alfarið yfir þetta bardagahlutverk fjölþjóðaliðsins, en smám saman á svo að fækka enn frekar í erlenda herliðinu. Haldin var hátíðleg athöfn í Kabúl í gær, þar sem fáni yfirstjórnar fjölþjóðaherliðsins var tekinn niður. Um svipað leyti gerðu uppreisnarmenn enn eina árásina, að þessu sinni á lögreglustöð í Kandahar-héraði, þar sem fimm létust og sjö særðust. Talibanar hafa hert árásir sínar undanfarið og Zabihullah Múdjahíd, talsmaður talibanahreyfingarinnar, sagði í viðtali við AP að þeir myndu halda áfram árásum sínum þangað til allir erlendir hermenn yrðu farnir frá Afganistan. Á þessu ári hafa átök og árásir í landinu kostað meira en 4.600 manns lífið, sem er nokkur fjölgun frá síðasta ári þegar 4.350 manns létust í átökum og árásum. Frá því Bandaríkin og bandamenn þeirra réðust inn í Afganistan árið 2001, nokkrum vikum eftir árásir hryðjuverkamanna al-Kaída-samtakanna á Bandaríkin, hafa um 3.500 erlendir hermenn látið þar lífið, þar af að minnsta kosti 2.210 Bandaríkjamenn. Fjölþjóðaliðið mun frá og með áramótum einbeita sér að því að þjálfa og aðstoða hersveitir heimamanna, en afganski herinn hefur haft forystu í átökunum við uppreisnarmenn síðan um mitt síðasta ár. Bandaríski herforinginn John F. Campbell, sem er yfirmaður fjölþjóðaliðs NATO og Bandaríkjanna, segir að sveitir afganska hersins og afgönsku lögreglunnar séu orðnar vel færar um að sinna þessu verkefni: „Þeir þurfa að gera einhverjar breytingar á yfirmönnum, sem verið er að framkvæma, og þeir þurf að láta fólk axla ábyrgð á verkum sínum.“ Þegar mest var voru 140 þúsund erlendir hermenn í Afganistan, en það var árið 2011. Þeir voru 13.300 nú í byrjun desember. Bandaríkin ætla að vera með nærri 11 þúsund manna herlið fyrstu þrjá mánuði næsta árs.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Sjá meira