Drap tugi námsmanna Guðsteinn Bjarnason skrifar 11. nóvember 2014 07:00 Íbúar í Potiskum fyrir utan skólann þar sem árásin var gerð í gær. fréttablaðið/AP
Nígería, AP Ekkert varð greinilega úr vopnahléi, sem stjórnvöld í Nígeríu sögðust hafa gert við vígasveitir uppreisnarmanna í norðausturhluta landsins. Tvær sjálfsvígsárásir í borginni Potiskum hafa, með viku millibili, kostað samtals að minnsta kosti 78 manns lífið. Í gær sprengdi maður sig í loft upp á samkomu í framhaldsskóla í borginni með þeim afleiðingum að nærri 50 námsmenn létu lífið, auk árásarmannsins. Viku áður hafði maður sprengt sig upp á trúarsamkomu í borginni. Um tvö þúsund nemendur voru saman komnir snemma í gærmorgun þegar sprenging varð skyndilega. „Við vorum að bíða eftir því að skólastjórinn ávarpaði samkomuna, um klukkan hálf átta að morgni, þegar við heyrðum ærandi hávaða og fæturnir kipptust undan mér,“ sagði Musa Ibrahim Yahaya, sautján ára nemi í skólanum sem ráðist var á: „Fólk tók að öskra og hlaupa, ég sá blóð út um allan líkama minn.“ Hann var kominn á sjúkrahús þar sem gert var að sárum á höfði hans. Frá sjúkrahúsinu fengust þær upplýsingar að 79 námsmenn hefðu verið lagðir inn. Sumir voru alvarlega særðir og líklega þurfti að fjarlægja útlimi af einhverjum þeirra. Þá voru 48 lík flutt á sjúkrahúsið, og virtust þau öll vera af fólki á aldrinum 11 til 20 ára.blóðbað Fyrir viku bjuggu íbúar sömu borgar tugi líka til greftrunar eftir sams konar árás.fréttablaðið/APVitni segja árásarmanninn líklega hafa komist inn með sprengiefni í bakpoka. Fyrir nokkrum mánuðum skýrði herinn í Nígeríu frá því að sprengiefnaverksmiðja hefði fundist, þar sem unnið hefði verið að því að sauma sprengiefni inn í bakpoka. Talið er að samtökin Boko Haram hafi staðið á bak við þessar árásir, en liðsmenn þeirra hafa undanfarin misseri herjað á almenning af mikilli grimmd. Í apríl síðastliðnum rændu þeir nærri 300 skólastúlkum. Sumum þeirra hefur tekist að flýja og lýsa þær hryllilegri meðferð sem þær máttu sæta af hálfu mannræningjanna. Allt þetta segjast samtökin hafa gert í nafni heimatilbúinnar öfgaútgáfu af íslamskri trú. Nafn samtakanna, Boko Haram, mun þýða „menntun er af hinu illa“. Hinn 17. október síðastliðinn sagðist Nígeríustjórn hafa samið um vopnahlé við Boko Haram, en Abubakar Shekau, leiðtogi samtakanna, sagðist aldrei hafa samið um slíkt.
Mest lesið Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent „Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ Innlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent Langreyðarnar komnar á land Innlent Réðst á leigubílstjóra og neitaði að borga farið Innlent Sextán mánuðir á skilorði fyrir að brjóta á átta stúlkum Innlent „Finnst ég komin heim þegar ég er í Færeyjum“ Innlent Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Innlent Lögreglan þakkar öllum sem komu að verkefninu Innlent Helmingur óánægður hefði Hildur valið Miðflokkinn Innlent Fleiri fréttir Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Sjá meira