Fyrsta skrefið í áttina að betri samskiptum Guðsteinn Bjarnason skrifar 11. nóvember 2014 07:00 Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans, og Xi Jinping, forseti Kína, ásamt eiginkonum sínum í Peking í gær. nordicphotos/AFP
Fyrsta handtakið mun hafa verið hálfvandræðalegt. Þeir Xi Jingping Kínaforseti og Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans, voru að minnsta kosti harla fálátir þegar þeir hittust í Peking í gær. Vaxandi fjandskapur hefur verið á milli ríkjanna undanfarið. Japönum finnst Kínverjar hafa verið afar yfirgangssamir, en á móti finnst Kínverjum forsætisráðherra Japans sýna óþægilega mikla þjóðrembu. Þeir notuðu samt tækifærið til að bæta samskiptin í gær, þegar leiðtogafundur Efnahagssamvinnusamtaka Asíu- og Kyrrahafsríkja (APEC) var haldinn í Peking í boði kínversku stjórnarinnar. Þeir héldu síðan afsíðis og ræddu tveir saman í hálftíma. Kínverska ríkisfréttastofan Xinhua segir að Xi hafi hvatt Abe til þess að „gera meira til þess að efla gagnkvæmt traust milli Japans og nágrannaríkja þess.“ Abe sagði hins vegar, að fundinum loknum, að bæði nágrannaríki Japans og Kína og fjölmörg önnur ríki hefðu lengi beðið eftir því að leiðtogarnir hittust til að ræða málin: „Við urðum loksins við þessu og stigum fyrsta skrefið í áttina að því að bæta samskipti okkar.“ Óvenjulegt þótti að Xi skyldi láta Abe bíða eftir sér, því vaninn er að hann taki á móti þeim sem koma að hitta hann. Utanríkisráðuneyti Kína tók auk þess fram að fundurinn hefði verið haldinn að ósk Abes.
Mest lesið Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Innlent Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent Langreyðarnar komnar á land Innlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent „Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ Innlent Réðst á leigubílstjóra og neitaði að borga farið Innlent Sextán mánuðir á skilorði fyrir að brjóta á átta stúlkum Innlent Rauðar viðvaranir í Bretlandi vegna hita Veður Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Innlent „Finnst ég komin heim þegar ég er í Færeyjum“ Innlent Fleiri fréttir Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Sjá meira