Glitnir langt kominn í stefnugerð gegn ríkinu Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 1. nóvember 2014 00:01 Bankaskatturinn á að hluta til að standa undir skuldaleiðréttingu ríkisstjórnarinnar. Vísir/Valli
Slitastjórn Glitnis hf. hyggst stefna ríkinu vegna álagningar bankaskattsins svokallaða sem hefur verið lagður á fyrirtæki í slitameðferð í fyrsta sinn. Þetta staðfestir Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, í samtali við Fréttablaðið. „Skatturinn kemur til greiðslu núna í nóvember, við munum greiða hann með fyrirvara um að það verði látið reyna á lögmæti hans,“ segir Steinunn. Hún segir undirbúning að stefnugerð slitastjórnarinnar langt kominn og gerir ráð fyrir að hún verði birt ríkinu öðrum hvorum megin við áramótin. Slitastjórnir Landsbankans hf. og Kaupþings hf. munu samkvæmt heimildum Fréttablaðsins ekki hafa tekið ákvörðun um hvort farið verði að fordæmi Glitnis eða beðið eftir niðurstöðu í því máli sem líklegast væri fordæmisgefandi.Steinunn Guðbjartsdóttir formaður slitastjórnar GlitnisÞrotabúin greiða samtals tæplega 35 milljarða í opinber gjöld á þessu ári og eru meðal fimm gjaldahæstu lögaðila landsins, ásamt Ríkissjóði og Landsbankanum hf. Heildarálagning á lögaðila nemur rúmlega 181 milljarði króna sem er hækkun frá því í fyrra um 49,3 prósent. Hækkun á fjárhæð sérstaks skatts á fjármálafyrirtæki er 3.292 prósent frá því í fyrra en samtals inniheimtir ríkisskattstjóri rúmlega 35 milljarða í þennan skatt. Þegar ákveðið var að breyta skattinum á þá leið að hann næði einnig til þrotabúa gömlu bankanna kom fram í greinargerð með breytingarlögunum að engin rök væru talin til standa þess að þau skyldu undanþegin þessari skattlagningu, meðal annars í ljósi þess gríðarlega kostnaðar sem íslenska þjóðarbúið hefði orðið fyrir vegna gjaldþrota gömlu bankanna. Í umsögn slitastjórnar Glitnis við frumvarp til breytinganna segir að hún telji lagasetninguna brjóta í bága við ýmis ákvæði stjórnarskrárinnar, þar á meðal eignarréttarákvæðið og sé bæði ómálefnaleg og órökrétt. Hluta af bankaskattinum á að nota til að greiða fyrir skuldalækkunaraðgerðir ríkisstjórnarinnar sem kynntar voru í nóvember í fyrra.
Mest lesið Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent Fleiri alvarlegri samtöl og oftar haft samband við Neyðarlínuna Innlent Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns Innlent Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Erlent Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Erlent Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Innlent Ekkert óvenjulegt við kalt og bjart veður Veður Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Innlent „Þá kemur bara allt í einu högg“ Innlent Fleiri fréttir Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Litlar breytingar á fylgi flokkanna Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns Fleiri alvarlegri samtöl og oftar haft samband við Neyðarlínuna Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Brottvísanir verði beittasta vopnið Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Fækka sýslumönnum í einn Óttaðist um líf sitt þegar árásin stóð sem hæst Loka framleiðslueldhúsi vegna listeríu Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Vilja ekki óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Boðar aðgerðir gegn brotastarfsemi Samstillt þingnefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Sjá meira