Tæknimenn sprengdu eldflaugina vegna stórfelldrar bilunar Bandaríkin og AP / Óli Kristján Ármannsson skrifa 29. október 2014 23:15 Hér má sjá brot úr myndbandsupptöku Bandarísku geimvísindastofnunarinnar (NASA) af því þegar ómönnuð geimflaug Orbital Sciences Corp. sprakk í loft upp yfir skotstað á Wallops Island í Virginíu í Bandaríkjunum. Fréttablaðið/AP
Ómönnuð geimflaug með vistir og rannsóknargögn, sem flytja átti í Alþjóðlegu geimstöðina sem er á sporbaug um jörðu, sprakk í loft upp rétt eftir að henni var skotið á loft á þriðjudagskvöld. Flaugin var í eigu einkafyrirtækisins Orbital Sciences Corp. sem starfar sem undirverktaki fyrir Bandarísku geimvísindastofnunina, NASA. Enginn meiddist í sprengingunni eða þegar logandi braki úr flauginni rigndi yfir skotpallinn og hafsvæði við hann. Guardian greinir frá því að tæknimenn á jörðu niðri hafi kveikt á sjálfseyðingarbúnaði flaugarinnar sex sekúndum eftir að henni var skotið á loft vegna stórfelldrar bilunar í tækjabúnaði. Fyrirtækið hefur lofað gagngerri rannsókn á orsökum slyssins og hófst leit í braki flaugarinnar þegar í gærmorgun. Um leið og gagnrýni hefur aukist á samninga NASA við sjálfstæða verktaka til að „brúa bil“ í geimferðaáætlun Bandaríkjanna þá hefur fyrirtækið varið ákvörðun sína um að nota rússneskan eldflaugabúnað sem kominn er til ára sinna og hefur verið sniðinn að þörfum Antares-geimflauganna. Haft er eftir Frank Culbertson, aðstoðarforstjóra Orbital Sciences, að of snemmt sé að fullyrða um orsakir slyssins.Horft á Fólk fylgist úr fjarlægð með flugtaki og sprengingu flaugar Orbital Sciences Corp. Fréttablaðið/APCulbertson segir Orbital Sciences tryggt gegn slysum en tjón í sprengingunni, fyrir utan viðgerðarkostnað á skotpalli og nágrenni, sé nálægt 200 milljónum Bandaríkjadala, eða sem svarar 24,2 milljörðum króna. Um borð í flauginni voru um 2,3 tonn af rannsóknar- og tækjabúnaði frá NASA, auk forpakkaðra matvæla handa geimförum um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni. Fara á aðra ferð með vistir í geimstöðina, sem er á sporbaug í 420 kílómetra hæð yfir jörðu, að sögn Mike Suffredini, geimstöðvarstjóra hjá NASA. Hann segir geimfarana sex, tvo Bandaríkjamenn, þrjá Rússa og einn Þjóðverja, sem um borð eru hafa nægar birgðir fram á vor. Tilviljun er sögð hafa ráðið því að laust eftir að Antares-geimflaugin átti að fara, þá var skotið á loft frá Kasakstan geimflaug Rússnesku geimvísindastofnunarinnar. Hún kom á áfangastað í Alþjóðlegu geimstöðinni sex klukkustundum síðar með um þrjú tonn af matvælum.
Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Innlent Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Innlent Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Fleiri fréttir Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Sjá meira