Erlent

Hætt við að kjósa um næstu skref

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Stúlkubarn með uppblásna gula regnhlíf á svæði því sem mótmælendur hafa lagt undir sig fyrir utan stjórnarbyggingarnar í Hong Kong í gær. Regnhlífar eru tákn mótmælanna og hafa verið sett upp á svæðinu nokkur listaverk með regnhlífarþema.
Stúlkubarn með uppblásna gula regnhlíf á svæði því sem mótmælendur hafa lagt undir sig fyrir utan stjórnarbyggingarnar í Hong Kong í gær. Regnhlífar eru tákn mótmælanna og hafa verið sett upp á svæðinu nokkur listaverk með regnhlífarþema. Fréttablaðið/AP
Leiðtogar mótmælenda sem krafist hafa lýðræðisumbóta í Hong Kong blésu í gær af kosningu um hver ættu að vera næstu skref í mótmælunum sem staðið hafa í mánuð.

Sögðu þeir ónógt samráð hafa verið haft við mótmælendur áður en atkvæðagreiðsla var boðuð.

Atkvæðagreiðslunni, sem standa átti í gær og í dag, var ætlað að kanna hug mótmælenda til svara við tilboðum stjórnvalda í Hong Kong eftir viðræður leiðtoga stúdenta sem staðið hafa fyrir mótmælunum og fulltrúa stjórnvalda í síðustu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×