Innlent

Ræktun geita verður efld

Viktoría Hermannsdóttir skrifar
Búinn verður til stafrænn gagnagrunnur með ætternisupplýsingum um íslenska geitastofninn.
Búinn verður til stafrænn gagnagrunnur með ætternisupplýsingum um íslenska geitastofninn.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur gert samning við Erfðanefnd landbúnaðarins um að efla geitfjárrækt á Íslandi. Reiknað er með að kostnaður verði samtals sjö milljónir króna á næstu þremur árum.

Samkvæmt tillögunum er ætlunin að auka beinan stuðning við geitabændur og gera átak í sæðistöku og djúpfrystingu sæðis svo koma megi upp erfðabanka er varðveiti mikilvægustu erfðaþætti stofnsins.

Einnig verður í samstarfi við Bændasamtök Íslands búinn til stafrænn gagnagrunnur með öllum ætternisupplýsingum sem safnað hefur verið frá upphafi um íslenska geitfjárstofninn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×