Seyðfirðingar líta á söluna sem tækifæri Svavar Hávarðsson skrifar 2. október 2014 07:00 Gullver NS-12. Óvissutímar eru fram undan hjá áhöfn skipsins við breytingar á eignarhaldi. mynd/adolf „
Ég held að þessum breytingum geti fylgt tækifæri til að efla samfélagið hérna. Að því leytinu er þetta jákvætt og ekki ástæða til að óttast þessar breytingar miðað við það sem við okkur er sagt,“ segir Arnbjörg Sveinsdóttir, forseti bæjarstjórnar á Seyðisfirði, um mat bæjarstjórnarinnar eftir tíðindi gærdagsins.Arnbjörg SveinsdóttirSíldarvinnslan í Neskaupstað hefur keypt öll hlutabréf í Gullbergi ehf. á Seyðisfirði sem gerir út togarann Gullver NS 12. Samhliða kaupum á togaranum keypti fyrirtækið húsnæði og búnað Brimbergs til fiskvinnslu á staðnum. Áfram er stefnt að því að gera út frá Seyðisfirði og tryggja störf tengd sjávarútvegi í byggðarlaginu. Síldarvinnslan hefur þegar töluverð umsvif á Seyðisfirði og rekur þar þegar fiskimjölsverksmiðju. „Við gerum okkur grein fyrir þeirri samfélagslegu ábyrgð sem spilar inn í þessi kaup. Við erum ekki að koma hingað inn til að fara, enda felur fjárfestingin sjálf í sér fyrirheit um áframhaldandi starfsemi,“ segir Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunar, spurður um kaupin og þýðingu þeirra fyrir útgerð og vinnslu. Gunnþór segir að þegar eigendur Gullbergs leituðu eftir viðræðum hafi ekki verið sjálfgefið að kaupa fyrirtækið, en ljóst að þá hefðu aðrir keypt. „Verkefnið er að spila úr þessu núna. Umsvif Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði munu aukast, verði viðskiptin samþykkt af Samkeppnisftirlitinu, en óábyrgt að lýsa því yfir að starfsemin verði í sama farvegi og hingað til. Markmiðið er að skapa góða umgjörð um traust störf og útgerð á svæðinu,“ segir Gunnþór.Gunnþór IngvasonArnbjörg bætir við að það sé vissulega jákvætt, og viss trygging í því falin, að rótgróið fyrirtæki á Austurlandi kaupi fyrirtækið, sem hefur verið máttarstólpi í bæjarfélaginu í yfir hálfa öld. „Við gerum okkur grein fyrir þeirri samfélagslegu ábyrgð sem spilar inn í þessi kaup. Við erum ekki að koma hingað inn til að fara, það er ekki markmiðið,“ segir Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar, spurður um kaupin og þýðingu þeirra fyrir útgerð og vinnslu. Gunnþór segir að þegar eigendur Gullbergs leituðu eftir viðræðum hafi ekki verið sjálfgefið að kaupa fyrirtækið, en ljóst að aðrir hefðu keypt ef þessi ákvörðun hefði ekki verið tekin. „Verkefnið er að spila úr þessu núna, og óábyrgt á þessum tímapunkti að lýsa því yfir að starfsemin verði í sama farvegi og hingað til. Við verðum að fá að vinna úr þessu, en það er skiljanlegt að það sæki ótti að fólki,“ segir Gunnþór. Hjá fyrirtækjunum á Seyðisfirði starfa um sjötíu manns í dag.
Tengdar fréttir Trúir því að salan styrki byggð á Seyðisfirði Adolf Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gullbergs ehf. á Seyðisfirði, hefur tilkynnt stjórn LÍÚ að hann gefi ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku í sambandinu. 2. október 2014 07:00 Mest lesið Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Davíð Oddsson er látinn Innlent Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Innlent Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Innlent Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Innlent Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Innlent Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent „Þá er bara búið að skemma MR“ Innlent Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Innlent Fleiri fréttir D-listinn nærri því sá sami en óljóst með Elliða „Þá er bara búið að skemma MR“ Fyrsti framboðslisti Viðreisnar í Ísafjarðarbæ samþykktur Davíð hafi verið hrókur alls fagnaðar og harður í horn að taka Fyrsti dagur samræmdra prófa í fimm ár Björgunarsveitir ferja heilbrigðisstarfsfólk í og úr vinnu Tók rúma þrjá tíma að slökkva eldinn Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Átökin breiðast út: Brá illilega þegar nærliggjandi hótel var sprengt í loft upp Dýpkun Landeyjahafnar seinkar: „Algerlega óásættanlegt“ Ákærður fyrir að nauðga konu ítrekað Hringveginum lokað vegna veðurs Davíðs minnst á Alþingi Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Nýtt framboð í Bolungarvík Kristrún minnist Davíðs og víða flaggað í hálfa stöng Tók sambýliskonu sína hálstaki en var sýknaður Minnisstæð heimsókn til Davíðs fyrir jól Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Hringvegurinn líklega lokaður til morguns Íslenskir strandaglópar í Dúbaí Leggur lokahönd á þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu Vélarvana bátur dreginn til hafnar í Sandgerði Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Davíð Oddsson er látinn Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Íslendingar óska eftir aðstoð Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Sjá meira
Trúir því að salan styrki byggð á Seyðisfirði Adolf Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gullbergs ehf. á Seyðisfirði, hefur tilkynnt stjórn LÍÚ að hann gefi ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku í sambandinu. 2. október 2014 07:00