Samantekt um Skotland: Þurfa að gera upp hug sinn Guðsteinn Bjarnason skrifar 13. september 2014 10:00 Alex Salmond, helsti baráttumaður fyrir sjálfstæði Skotlands, stillti sér upp í hópi skoðanabræðra nú í vikunni og hvetur fólk til að merkja við "Já“ á atkvæðaseðlinum.
Skotar standa nú frammi fyrir því að þurfa innan fárra daga að taka afdrifaríka ákvörðun um framtíðina. Kostirnir eru aðeins tveir: Að stofna sjálfstætt ríki með þeirri óvissu sem því fylgir eða láta bresku stjórnina sjá um hlutina áfram. Skotar hafa verið í ríkjasambandi við England, og þar með Wales, í rúmlega þrjár aldir eða frá því Bretland varð formlega til með sameiningu landanna árið 1707. Á fimmtudaginn kemur ganga Skotar að kjörborðinu þar sem þeir verða spurðir einfaldrar spurningar: Á Skotland að vera sjálfstætt land? Margir þeirra hafa þó átt erfitt með að gera upp hug sinn, enda afleiðingarnar að einhverju leyti illfyrirsjáanlegar ákveði þeir að taka stóra skrefið og stofna sjálfstætt ríki. Samkvæmt skoðanakönnunum stefnir allt í spennandi kosningar. Fylgismenn sjálfstæðis hafa á síðustu vikum verið að sækja mjög í sig veðrið. Þeir komust um síðustu helgi í fyrsta sinn upp fyrir andstæðinga sína, en eitthvað virðist vera að draga úr fylginu á ný. Könnun frá YouGov í gær sýndi fjögurra prósenta forskot andstæðinga sjálfstæðis.Svifasein andstaða Stærstu efasemdirnar hafa snúist um framtíðargjaldeyri Skotlands og óvissu varðandi efnahagslega afkomu hins nýja ríkis. Aðrir, ekki síst Englendingar en einnig margir Skotar, eru á móti því að kljúfa Bretland í sundur, „höggva af því hausinn“ eins og Boris Johnson, borgarstjóri í London, orðaði það í byrjun vikunnar. Andstæðingar sjálfstæðis hafa reyndar ekki haft sig neitt verulega mikið í frammi í kosningabaráttunni fyrr en nú á lokasprettinum.Alex Salmond, leiðtogi sjálfstæðissinna, hefur því átt tiltölulega auðvelt með að koma boðskap sínum á framfæri án verulegra mótbára frá andstæðingum sjálfstæðis og misjafnlega sannfærðu efasemdarfólki. Breskir stjórnmálaleiðtogar hafa vaknað til lífsins nú í vikunni og hver á fætur öðrum hvatt Skota til þess að hafna aðskilnaði. Fræga fólkið hefur verið eitthvað duglegra að láta málið til sín taka. Leikarinn Sean Connery hefur til dæmis lengi verið harður þjóðernissinni og talar mjög máli aðskilnaðar frá Bretlandi, en rithöfundurinn J.K. Rowling, sem eins og Connery er skosk, er á öndverðum meiði: Þar stendur James Bond gegn Harry Potter, og ekki gott að sjá hvor verður ofan á. Mikla athygli vakti þegar eitt helsta dagblað Skotlands, The Scotsman, birti á miðvikudag áberandi yfirlýsingu þar sem kostir og gallar sjálfstæðis voru reifaðir. Blaðið hafði engar efasemdir um að sjálfstætt Skotland gæti vel staðið jafnfætis öðrum löndum og notið velsældar, en niðurstaðan varð engu að síður sú að Skotar ættu að hætta við öll sjálfstæðisáform. „Þetta er ekki afstaða, sem tekin er vegna hræðslu eða skorts á sjálfsöryggi, eða skorts á föðurlandsást, heldur þvert á móti,“ segir í yfirlýsingunni.Alex SalmondVísir/GettyHvetur til dáða Alex Salmond lætur þó hvergi deigan síga. Hann gagnrýnir breska fjölmiðla, breska stjórnmálaleiðtoga og jafnvel breska embættismannakerfið harðlega fyrir að reyna allt til að draga kjarkinn úr Skotum. Í gær hafði hann hörð orð um Royal Bank of Scotland, einn stærsta banka Skotlands, sem hafði hótað því að flytja höfuðstöðvar sínar til Englands lýstu Skotar yfir sjálfstæði. Þrír aðrir stórir bankar hafa hótað því sama. „Það mikilvægasta er að Já-atkvæði er ekki lokapunktur, heldur upphafið á einhverju mjög sérstöku,“ segir hann og hvetur fólk til að láta ekki úrtölufólk hafa áhrif á sig: „Framtíð Skotlands á að vera í höndum Skota.“Leiðtogar stóru bresku stjórnmálaflokkanna, þeir Ed Miliband, Nick Clegg og David Cameron, héldu til Skotlands á miðvikudaginn í von um að fá Skota ofan af aðskilnaði.Vísir/GettyFyrirmynd annarra Áhrifin af sjálfstæði Skotlands gætu reyndar náð langt út fyrir landsteina Skotlands sjálfs. Í Katalóníuhéraði á Spáni hafa sjálfstæðissinnar fyllst miklum eldmóð vegna fordæmis Skota, eins og sást á fimmtudaginn þegar hundruð þúsunda komu saman í Barcelona til að hvetja til sjálfstæðis. Katalóníubúar hafa lengi verið áhugasamir um aðskilnað frá Spáni og stefna ótrauðir á atkvæðagreiðslu um málið þann 9. nóvember, jafnvel þótt allar líkur bendi til þess að stjórnlagadómstóll Spánar muni ekki fallast á aðskilnað, hver svo sem niðurstaða kosninganna verður. Þá má fastlega búast við að sjálfstæði Skotlands myndi hvetja marga aðskilnaðarsinna á Norður-Írlandi til þess að fara að hugsa sér til hreyfings á ný.Hve stórt yrði nýja ríkið? Skotland yrði fimm milljón manna ríki, álíka stórt að flatarmáli og álíka fjölmennt og Írland sem hefur verið sjálfstætt í tæpa öld.Fengi sjálfstætt Skotland aðild að ESB?Þótt Skotland sé nú í Evrópusambandinu sem hluti af Bretlandi þá fengi sjálfstætt Skotland ekki sjálfkrafa aðild heldur þyrfti að sækja um aðild og ganga í gegnum aðildarviðræður þar sem semja þyrfti um það hvernig löggjöf Skotlands yrði samræmd löggjöf Evrópusambandsins.Hvaða gjaldmiðill yrði notaður?Alex Salmond hefur stefnt að því að gera gjaldmiðilsbandalag við Breta um pundið. Bresk stjórnvöld hafa tekið dræmt í slíkar hugmyndir. Breski seðlabankinn segir að í slíku bandalagi þyrftu Skotar að gefa eitthvað eftir af sjálfstæði sínu. Skotar gætu í sjálfu sér haldið áfram að nota pundið án samþykkis Breta, en breski seðlabankinn hefði áfram öll yfirráð yfir gjaldmiðlinum. Ef Skotar vildu fá evruna þyrfti Skotland fyrst að gerast aðildarríki Evrópusambandsins. Einhliða upptaka evrunnar yrði gerð í óþökk Evrópusambands. Sitji Skotar uppi án bæði punds og evru þyrftu þeir væntanlega að hefja útgáfu eigin myntar, en lítill áhugi virðist vera fyrir því.Alex SalmondVísir/Getty Salmond og sjálfstæðisbaráttan1954 Alex Salmond fæddist á gamlársdag árið 1954 í bæ sem heitir Linlithgow, ekki langt frá Edinborg. Hann er því 59 ára gamall.1973 Salmond gengur 19 ára gamall í Skoska þjóðarflokkinn, sem var stofnaður árið 1934. Flokkurinn hefur frá upphafi barist fyrir því að Skotar fengju sitt eigið þjóðþing.1979 Efnt til atkvæðagreiðslu meðal Skota og Wales-búa um takmarkað sjálfstæði með eigin löggjafaþingi. Wales-búar höfnuðu sjálfstæði en skoskir kjósendur samþykktu með nærri 52 prósentum atkvæða. Vegna dræmrar kosningaþátttöku dugði það samt ekki til.1987 Salmond tekur sæti á breska þinginu.1990 Kosinn leiðtogi Skoska þjóðarflokksins.1997 Aftur var efnt til atkvæðagreiðslu meðal Skota, Wales-búa og nú einnig Norður-Íra til að kanna hvort nægur stuðningur væri við takmarkað sjálfstæði með eigin löggjafarþingi. Að þessu sinni samþykktu 74 prósent kjósenda tillöguna.1999 Efnt er til þingkosninga í Skotlandi samkvæmt lögum frá 1998. Nýtt þing Skota kemur fyrst saman 12. maí. Salmond tekur sæti á nýja þinginu fyrir Skoska þjóðarflokkinn.2004 Ný glæsibygging skoska þingsins tekin í notkun í Holyrood í Edinborg.2007 Skoski þjóðarflokkurinn vinnur mikinn sigur í kosningum til skoska þingsins. Salmond verður fyrsti ráðherra minnihlutastjórnar með stuðningi Græningja.2010 Salmond leggur fram frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu meðal Skota um sjálfstæði. Hann dró frumvarpið til baka þegar ljóst var að ekki væri meirihluti fyrir því á þingi.2011 Skoski þjóðarflokkurinn nær hreinum meirihluta á skoska þinginu. Salmond hefst þegar handa við að hrinda helsta stefnumáli sínu í framkvæmd og undirbúa kosningar um sjálfstæði Skotlands á seinni hluta kjörtímabilsins.2012 Breska stjórnin fellst á að veita skoska þinginu heimild til að efna til kosninga um sjálfstæði, að uppfylltum vissum skilyrðum.2013 Frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu var samþykkt á skoska þinginu 27. júní. Salmond leggur 15. nóvember fram ítarlega skýrslu um framtíð Skotlands, þar sem lýst er hugmyndum hans um fyrirkomulag sjálfstæðs ríkis.
Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna Innlent Fleiri fréttir Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Rallýbíll ók á áhorfendur á Sri Lanka Sjá meira