"Ég hélt að rúðurnar myndu koma inn í stofu" Jóhannes Stefánsson skrifar 3. janúar 2014 21:30 Margrét Hügemann segir fólkið í bænum mjög skelkað eftir gríðarlega öfluga sprengingu. MYND/AP/AÐSEND „
Þetta var ofboðslega kraftmikil sprenging. Ég hélt að rúðurnar myndu koma inn í stofu þar sem ég sat. Þær nötruðu og skulfu og það brakaði í öllu hérna, mér brá mjög mikið." segir Margrét Hügemann, Íslendingur sem býr í Euskirchen í Þýskalandi. Margrét varð vitni að sprengingu sem dró einn til bana og slasaði að minnsta kosti átta aðra fyrr í dag í bænum. Maðurinn sem lést var að vinna á jarðýtu sem rakst í sprengjuna með fyrrgreindum afleiðingum. Margrét býr í um kílómeters fjarlægð frá vinnusvæðinu þar sem sprengjan sprakk. Hún segir fólk hafa flykkst út á götu þegar það heyrði og fann fyrir sprengingunni. „Það eru margir mjög skelkaðir hérna og mjög margar rúður brotnar, sérstaklega stórar rúður. Það eru líka margar bílrúður brotnar og bílar sem voru nálægt eru sumir gjörónýtir," segir Margrét.Vissi strax hvað hefði gerst „Við erum búin að búa hérna í tólf ár og við höfum tvisvar þurft að yfirgefa heimilið á meðan sprengjur úr seinni heimsstyrjöldinni voru fjarlægðar í nágrenninu. Þess vegna var þetta það fyrsta sem mér datt í hug, að það hefði sprungið sprengja einhversstaðar í bænum," segir Margrét. „Það er nánast daglegt brauð hérna í þýskalandi að það finnist sprengjur úr stríðinu en sem betur fer það yfirleitt ekki svona," bætir hún við. Margrét segist hafa heyrt að sprengjusérfræðingar telji að sprengjan sem sprakk hafi verið sprengja sem var ætlað að springa í loftinu fyrir ofan hús og rífa þökin af þeim áður en eldsprengjum var svo látið rigna inn í húsin hjá fólki. „Ég hefði ekki viljað upplifa hvernig þetta var í stríðinu á sínum tíma miðað við kraftinn og eyðilegginguna af þessari einu sprengju," segir Margrét Hügemann að lokum.
Mest lesið Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Innlent Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Innlent Hegðun Trumps vonbrigði Innlent Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Innlent Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Innlent Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Sjá meira