Fjölskylda Politkovsköju krefst enn svara Guðsteinn Bjarnason skrifar 10. júní 2014 10:00 Bræðurnir Dsjabril og Rustam Makhmudov í réttarsal í Moskvu. Vísir/AP
Rustam Makhmudov var í gær dæmdur til ævilangs fangelsis fyrir morðið á blaðakonunni Önnu Politkovsköju haustið 2006. Sannað þótti að hann hefði hleypt af skotinu sem varð henni að bana í lyftunni í fjölbýlishúsi í Moskvu, þar sem hún bjó. Frændi hans, Lom-Ali Gaitukajev, fékk einnig ævilangt fangelsi fyrir að hafa skipulagt banatilræðið. Tveir af bræðrum Makhmudovs voru svo dæmdir í tólf og 14 ára fangelsi fyrir aðild að morðinu, en fyrrverandi lögreglumaður í Moskvu, Sergei Khadsjikurbanov að nafni, hlaut 20 ára fangelsi. Réttarhöldin hafa ekki leitt í ljós neitt um tilefni morðsins eða hvort mennirnir hafi verið fengnir til þess að fremja verkið. Blaðakonan Politkovskaja hafði í blaðagreinum og bókum ítrekað gagnrýnt Vladimír Pútín forseta fyrir framferði stjórnar hans í Tsjetsjeníu. Hún hafði meðal annars sakað Pútín og stjórn hans um gróf mannréttindabrot í Tsjetsjeníu. Makhmudov-bræðurnir eru allir frá Tsjetsjeníu og Gaitukajev sömuleiðis. Fjölskylda Politkovsköju hefur sagt að áfram verði reynt að fá stjórnvöld til þess að komast til botns í málinu. „Fyrir okkur er mikilvægast að komast að því hver skipaði fyrir um morðtilræðið,“ hafði rússneska fréttastofan ITAR-Tass eftir Ilja Politkovskí, syni hennar.
Mest lesið Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Innlent Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Facebook lá niðri Erlent Borgin afþakkar risaeðlubein Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Innlent Fleiri fréttir Dregur umdeildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka Facebook lá niðri Kaninn pakkar saman í Evrópu Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Sjá meira