Assad stefnir ótrauður á kosningar Guðsteinn Bjarnason skrifar 31. maí 2014 10:15 Eyðilegging Frá borginni Aleppo í Sýrlandi þar sem sprengjur hersins hafa kostað nærri tvö þúsund lífið. Vísir/AP
Á þriðjudaginn kemur efna sýrlensk stjórnvöld til forsetakosninga. Enginn efast um að Bashar al Assad, sem tók við sem forseti af föður sínum árið 2000, muni bera sigur úr býtum. Annað tæki hann ekki í mál. Kosningarnar verða haldnar í miðri borgarastyrjöld. Þrjár milljónir íbúanna hafa flúið til nágrannaríkjanna og sex milljónir eru á vergangi innan landamæranna. Samtals er meira en þriðjungur íbúanna flúinn að heiman og óvíst með öllu hvernig þetta fólk ætti að fara að því að taka þátt í kosningunum. Á Vesturlöndum er því litið á kosningarnar sem skrípaleik. Tveir menn hafa til málamynda boðið sig fram gegn Assad, að því er virðist í þeim tilgangi einum að ljá kosningunum örlítinn blæ trúverðugleika. Borgarastyrjöldin síðustu þrjú árin hefur kostað hátt á annað hundrað þúsund manns lífið. Í gær skýrðu svo sýrlensku mannréttindasamtökin Syrian Observatory for Human Rights, sem hafa bækistöðvar á Bretlandi, frá því að það sem af er þessu ári hafi tunnusprengjur stjórnarhersins kostað nærri tvö þúsund manns lífið í borginni Aleppo. Hátt í sex hundruð þeirra voru yngri en 18 ára og nærri 300 voru konur. Stjórnarherinn hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir að nota tunnusprengjur gegn almenningi í borginni, sem er fjölmennasta borg landsins og var fram á allra síðustu misseri helsta miðstöð verslunar og viðskipta. Sprengjurnar eru útbúnar þannig að málmbrotum er hrúgað í tunnu ásamt sprengiefni og þessu er svo kastað úr þyrlum. Frá árinu 2012 hefur stjórnarherinn ákaft reynt, en lítið orðið ágengt, að hrekja uppreisnarmenn frá borginni, sem þeir hafa að stórum hluta haft á sínu valdi. Tunnusprengjunum er varpað á þau hverfi borgarinnar, sem uppreisnarmenn hafa á sínu valdi. Sprengjunum er ætlað að valda sem mestu tjóni og stjórnarherinn virðist ekki láta sig neinu varða hvort þær koma niður á uppreisnarmenn eða almenna borgara. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sendi í febrúar frá sér ályktun þar sem þess var krafist að stjórnarherinn hætti að gera árásir á almenna borgara í Sýrlandi. Meðal annars var þess krafist að hann hætti að varpa tunnusprengjum á íbúðahverfi.
Mest lesið Landsmenn allir harmi slegnir Innlent Dauðbrá og varð öskureið þegar hún sá sjálfa sig í gervigreindarmyndbandi Innlent „Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Innlent Tillaga um að stækka Hótel Flatey felld Innlent Sósíalistar og Rússlandsvinir undir eitt þak Innlent Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent Mikilvægt að nota réttu orðin sem séu píka og typpi Innlent Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Innlent Fjögurra daga Njáluhátíð sett á Hvolsvelli í kvöld Innlent Fleiri fréttir Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu „Því miður vantar ennþá ansi mikið“ Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Sneru aftur og er fylgt af lögreglu svo þeir flýi ekki Flytja eina frægustu kirkju Svíþjóðar um fimm kílómetra Vill vísa Thunberg frá Noregi fyrir mótmæli gegn olíuvinnslu Hafa afturkallað yfir 6.000 námsmannaleyfi Sjá meira