Vill fara sem fyrst úr ESB Guðsteinn Bjarnason skrifar 22. maí 2014 07:15 Nigel Farage gæti hæglega halað inn fjórðung eða jafnvel þriðjung atkvæða í Bretlandi í dag.
Boðskapur Nigels Farage er einfaldur: Bretland á að hverfa úr Evrópusambandinu. Rökstuðningurinn er líka einfaldur: Evrópusambandið er að eyðileggja Bretland með ofstjórn og útlendingaflóði frá fátæku löndunum í austanverðri Evrópu. „Við höfum galopnað dyrnar fyrir nærri hálfum milljarði íbúa úr öðrum aðildarríkjum Evrópusambandsins,“ er yfirlýsing sem hann hefur hamrað mjög á undanfarið. Þannig elur hann á ótta Breta við að missa lífsviðurværi sitt í hendur fátæka fólksins frá útlöndum og lætur það ekkert trufla sig þótt nákvæmlega engar líkur séu á því að allir íbúar hinna Evrópusambandsríkjanna taki upp á því að flytja til Bretlands.Fordómar Hann hefur verið gagnrýndur fyrir þröngsýni, fordóma og kynþáttahatur en þær ásakanir virðast hrökkva af honum jafnharðan, enda svarar hann hástöfum og segist bara vera að segja sannleikann. Hann neyddist reyndar til að draga aðeins í land með alhæfingarnar eftir ummæli sín í útvarpsviðtali um síðustu helgi, þar sem hann hafði sagst þurfa að hafa varann á sér ef svo færi að hópur Rúmena flytti í húsið við hliðina á honum. „Yfirgnæfandi meirihluti þeirra Rúmena sem hafa komið til Bretlands vilja bæta líf sitt og myndu verða góðir nágrannar,” sagði hann í yfirlýsingu á mánudag og fullyrti þar að flokkur sinn væri ekki flokkur kynþáttahatara. Samt dró hann í sömu yfirlýsingu fram tölfræði um glæpagengi frá Rúmeníu og sagði að Bretland ætti alls ekki að vera með opið upp á gátt gagnvart öllum íbúum Rúmeníu. Aðeins þegar farið væri að kanna bakgrunn þeirra Rúmena, sem vildu flytjast til Bretlands, gæti hann svarað því neitandi ef spurt væri hvort Bretar þyrftu að hafa áhyggjur ef hópur Rúmena flytti í næsta hús. Þannig að í reynd ítrekaði hann hin umdeildu ummæli sín í þessari sömu yfirlýsingu, sem hann sendi frá sér á mánudag til að bera af sér ásakanir um kynþáttafordóma.Mælska Farage er mikill mælskumaður og lætur engan vaða ofan í sig. Nick Clegg, leiðtogi Frjálslynda flokksins og varaforsætisráðherra í ríkisstjórn Davids Cameron, fór halloka fyrir honum í tveimur sjónvarpskappræðum nýlega. Clegg virkaði bæði þvælinn og hikandi andspænis sjálfsöruggum og fullyrðingaglöðum Farage. Hvorki Cameron forsætisráðherra né Ed Miliband, leiðtogi Verkamannaflokksins, létu hafa sig út í kappræður við Farage um Evrópusambandið. Fyrir vikið sakar hann þá um hugleysi en hrósar Clegg fyrir að hafa látið sig hafa það. Mælskugleðin og sjálfsöryggið í Farage hefur skilað því að flokkur hans gæti hæglega halað inn fjórðung eða jafnvel þriðjung atkvæða í Evrópuþingskosningunum í dag. Farage segir að sigur sinn muni valda jarðskjálfta í breskum stjórnmálum. Á vettvangi Evrópuþingsins er ekki síður að vænta áhrifa þegar andstæðingar ESB mæta fílefldir til leiks og taka til við baráttu sína gegn þeim stofnunum, sem þeir hafa verið kosnir til að vinna fyrir.
Mest lesið Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Erlent Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Innlent „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Innlent ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Innlent Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Erlent Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ Innlent Fleiri fréttir Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sjá meira