Slær Klose markametið og vinnur HM-titil? Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. maí 2014 14:00 Miroslav Klose á möguleika á að slá markamet Ronaldos á HM í Brasilíu í sumar. Vísir/Getty
Fátt kom á óvart þegar Joachim Löw tilkynnti 30 manna hóp Þýskalands fyrir HM í Brasilíu í síðustu viku, nema kannski helst að í hópnum voru aðeins tveir leikmenn sem flokkast gætust sem hreinræktaðir framherjar; nýliðinn Kevin Volland, sem leikur með 1899 Hoffenheim, og hinn þrautreyndi Miroslav Klose hjá Lazio á Ítalíu. Mario Gomez, framherji Fiorentina, var ekki valinn, en hann hefur átt við meiðsli að stríða og hefur af þeim sökum aðeins fimm sinnum verið í byrjunarliði Flórensliðsins á tímabilinu. Max Kruse, sem skoraði tólf mörk fyrir Borussia Mönchengladbach í vetur, hlaut heldur ekki náð fyrir augum Löws og þá gefur Stefan Kießling, framherji Bayer Leverkusen og markahæsti leikmaður þýsku deildarinnar í fyrra, ekki kost á sér í landsliðið meðan Löw er þar við stjórnvölinn. Enn eitt stórmótið í röð munu Þjóðverjar því leggja traust sitt á Klose. „Klose er alltaf upp á sitt besta á stórmótum,“ sagði Löw þegar hann tilkynnti þýska hópinn. „Hann hefur verið að glíma við meiðsli að undanförnu en við erum fullvissir um að hann getur hjálpað liðinu,“ sagði landsliðsþjálfarinn. Það virðist sama á hverju gengur, sama hvað árunum líður, alltaf leita Þjóðverjar til þessa hlédræga framherja sem fagnar 36 ára afmæli sínu nokkrum dögum áður en Þýskaland leikur sinn fyrsta leik á HM. Klose er elsti og leikreyndasti leikmaðurinn í þýska hópnum og sá eini sem er eftir úr liðinu sem lenti í öðru sæti á HM í Kóreu og Japan fyrir tólf árum.Klose skorar í sínum fyrsta leik á HM, gegn Sádi-Arabíu 2002.Vísir/GettySmiðurinn sem varð markakóngur Ferill Miroslavs Klose – sem er sonur pólskra hjóna og átti einnig möguleika á að leika fyrir landslið Póllands – fór fremur hægt af stað. Þegar hann var 19 ára gamall lék hann með áhugamannaliðinu Blaubach-Diedelkopf í 7. deild, meðfram því sem hann lærði smíðar. Klose vann sig upp á næstu árum en það var ekki fyrr en hann var orðinn 22 ára sem hann festi sig í sessi hjá Kaiserslautern. Eftir það gerðust hlutirnir hins vegar hratt. Klose fór að skora reglulega í Bundesligunni og í mars 2001 kom hann inn á sem varamaður og skoraði í sínum fyrsta landsleik. Og til að gera langa sögu stutta, þá hefur hann ekki hætt að skora síðan. Alls eru mörkin orðin 68 í 131 landsleik, en Klose er markahæsti leikmaður þýska landsliðsins frá upphafi ásamt Gerd Müller, sem þurfti reyndar aðeins 62 leiki til að skora sín 68 mörk. Óhætt er að segja að frumraun Kloses á HM hafi verið glæsileg, en hann skoraði þrennu í sínum fyrsta leik, 8-0 sigri á Sádi-Arabíu. Alls skoraði hann fimm mörk (öll með skalla) í Kóreu og Japan 2002, fimm á heimavelli 2006 (þar sem hann var markakóngur) og fjögur í Suður-Afríku. Þetta gerir 14 mörk – jafn mörg og áðurnefndur Müller skoraði á HM á sínum tíma – og Klose vantar því aðeins eitt mark til að jafna markamet hins brasilíska Ronaldos, sem skoraði 15 mörk á þremur heimsmeistaramótum á árunum 1998-2006.Hugsar um metið „Ég get ekki neitað því að ég hugsa um þetta. Ég er of metnaðarfullur til að gera það ekki, en liðið er alltaf í forgangi,“ sagði Klose nýverið í samtali við þýska dagblaðið Süddeutsche Zeitung. Hann sagði enn fremur að HM í Brasilíu yrði að öllum líkindum hans síðasta stórmót. Klose er því væntanlega staðráðinn í að kveðja þýska landsliðið, sem hann hefur þjónað svo vel í gegnum árin, með stæl. Markamet og heimsmeistaratitill? Möguleikinn er að minnsta kosti fyrir hendi, en Þjóðverjar hafa á að skipa afburðagóðu liði um þessar mundir.Joachim Löw fylgist með Klose á æfingu hjá þýska landsliðinu.Vísir/GettyTaka Þjóðverjar loks stóra skrefið? Eftir útreiðina sem Þýskaland fékk á EM 2000 litu Þjóðverjar inn á við og réðust í endurbætur í unglingastarfi sínu. Öllum 36 liðunum í efstu og næstefstu deild var gert að starfrækja unglingaakademíur til að öðlast keppnisleyfi og í hverjum nýjum hópi sem var tekinn inn í akademíurnar þurftu að vera a.m.k. tólf leikmenn sem gætu leikið fyrir þýska landsliðið í framtíðinni. Að auki var sett á stofn 121 miðstöð víðs vegar um Þýskaland þar sem leikmenn á aldrinum 10-17 ára fengu tækifæri á að bæta tæknilega getu sína. Aðrir þættir höfðu einnig áhrif, s.s. eignarhald á liðum í Bundesligunni, gott samstarf milli félaganna og þýska knattspyrnusambandsins, breytt efnahagsástand og tilslakanir á innflytjendalögum sem gerðu fleiri leikmönnum af erlendu bergi brotnu kleift að spila fyrir hönd Þýskalands. Þessar breytingar fóru fljótlega að bera ávöxt. Þýskum leikmönnum í Bundesligunni fjölgaði umtalsvert – í dag eru 55% allra leikmanna í deildinni heimamenn, miðað við 31% í ensku úrvalsdeildinni – og árangur yngri landsliða Þýskalands fór batnandi. Þjóðverjar urðu t.a.m. Evrópumeistarar U-21 árs landsliða árið 2009, eftir 4-0 sigur á Englendingum í úrslitaleik. Margir úr því liði og fleiri til fengu eldskírn sína á HM 2010 í S-Afríku. Leikmenn á borð við Mesut Özil, Thomas Müller, Sami Khedira, Manuel Neuer, Toni Kroos og Jérôme Boateng stálu senunni í skemmtilegu þýsku liði sem vann m.a. stórsigra á Englandi og Argentínu og endaði að lokum í þriðja sæti. Síðan þá hafa leikmenn á borð við Mario Götze, Mats Hummels, Marco Reus, Ilkay Gündogan, André Schürrle, Julian Draxler, Marcel Schmelzer og tvíburana Lars og Sven Bender bæst við þennan fríða flokk.Taka Þjóðverjar stóra skrefið í sumar?Vísir/GettyHafa bognað á síðustu stórmótum Þrátt fyrir þennan frábæra mannskap hafa verið sett spurningarmerki við andlegan styrk þýska landsliðsins, en þegar allt hefur verið undir á síðustu tveimur stórmótum hefur liðið bognað og tapað í undanúrslitum; gegn Spáni á HM 2010 og Ítalíu á EM 2012. Bæði Spánn og Ítalía gerðu Þýskalandi erfitt fyrir með því að þétta miðsvæðið, halda boltanum og pressa vel. Þjóðverjar þurfa að vera með svör við þess konar leikaðferð ætli liðið sér alla leið í Brasilíu. Hæfileikarnir og getan eru svo sannarlega til staðar í þýska liðinu og það hefur allt til að bera til að ná árangri. Þýskaland hefur staðið á þröskuldinum á undanförnum stórmótum, en nú er kominn tími til að Klose og félagar stígi stóra skrefið.
Fótbolti HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Tárin runnu þegar feðgarnir föðmuðust eftir afrek Gísla í Meistaradeildinni Handbolti Álftnesingar krækja í lykilmann Keflavíkur Körfubolti Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Enski boltinn „Ég á erfitt með að trúa þessu upp á hreinræktaðan Árbæing“ Íslenski boltinn Giftu sig í miðju hlaupi Sport Systurfélagi Silkeborg hent út úr Evrópukeppninni áður en hún byrjar Fótbolti Dóttirin talar íslensku: Í úrslitum NBA og meira tengd Íslandi en áður Körfubolti Sjáðu Gylfa leggja upp sigurmarkið fyrir Gunnar og öll hin í sigri Víkinga á KR Íslenski boltinn Leikmenn sænska kvennalandsliðsins slógust á æfingu Fótbolti Versta staða Fylkismanna í næstum því fjörutíu ár Íslenski boltinn Fleiri fréttir Topplisti Alberts: „Íslenskasti leikur allra tíma“ Asíutúrinn setur strik í reikninginn varðandi framtíð Son Í stöðugu sambandi við strandaglópinn Solomon Markalaust hjá Fluminense og Dortmund „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Systurfélagi Silkeborg hent út úr Evrópukeppninni áður en hún byrjar Flýta tveimur leikjum KA-manna í næsta mánuði Versta staða Fylkismanna í næstum því fjörutíu ár Víkingar til Kósóvó en Valsmenn til Eistlands Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Trump fékk gefins áritaða treyju Cristiano Ronaldo Blikar lentu á móti albönsku meisturunum „Ég á erfitt með að trúa þessu upp á hreinræktaðan Árbæing“ Vita ekki hvar leikmaður þeirra er Þjálfari Evrópumeistaranna ber að ofan og berfættur á æfingu liðsins Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool Sjáðu Gylfa leggja upp sigurmarkið fyrir Gunnar og öll hin í sigri Víkinga á KR Leikmenn sænska kvennalandsliðsins slógust á æfingu Óskar Hrafn: Lítið gagn af því að tryllast Gylfi: Það vilja allir spilar framar Uppgjörið: Víkingur - KR 3-2 | Víkingur tyllti sér á toppinn í frábærum leik Uppgjörið: FH 5 - 1 Tindastóll | FH gekk frá Tindastól í seinni hálfleik Uppgjörið: Þór/KA 0 - 2 Breiðablik | Blikar með öruggan sigur Neyddur í legghlífar í Garðabæ en losaði sig strax við þær María og Haug fá ekki að mæta Íslandi á EM Leita arftaka Jóns Þórs: „Hann tók þessu með mikilli reisn“ Áhorf á kvennaboltann eykst mikið í Noregi en hrynur á Íslandi Jón Þór hættur hjá ÍA „Ég vil drepa Manchester United“ Sjá meira