Erlent

100 þúsund til Danmerkur

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir. skrifar
Danski þjóðarflokkurinn vill takmarka fjölda innflytjenda.
fréttablaðið/pjetur
Danski þjóðarflokkurinn vill takmarka fjölda innflytjenda. fréttablaðið/pjetur
Frá 2009 til 2013 komu um 100 þúsund útlendingar til Danmerkur til að setjast þar að. Samkvæmt frétt Jótlandspóstsins komu jafnmargir frá vestrænum löndum og frá öðrum löndum.

Danski þjóðarflokkurinn vill takmarka innflutning með strangari innflytjendalöggjöf. Jafnaðarmannaflokkurinn segir ekki þörf á að herða reglur. Nú þegar sé viðmiðunin að danskt samfélag geti boðið þeim sem koma aðlögun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×