Fá ríki í heiminum lífláta fólk Guðsteinn Bjarnason skrifar 29. mars 2014 07:00 Teknir af lífi Íran kemur næst á eftir Kína hvað varðar fjölda dauðarefsinga. Nordicphotos/AFP
Kínverjar eru allra ríkja stórtækastir í dauðarefsingum og aftökum. Á hverju ári eru þúsundir manna teknir þar af lífi, en nákvæm tala er ekki þekkt vegna þess að farið er með hana sem ríkisleyndarmál. Fyrir utan Kína er vitað til þess að 778 manns hafi verið teknir af lífi á síðasta ári. Raunveruleg tala er líklega nokkru hærri, en víða hefur reynst erfitt að sannreyna tölur um aftökur. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá mannréttindasamtökunum Amnesty International, sem árlega birta yfirlit yfir aftökur í heiminum. Samkvæmt þessum tölum hefur staðfestum dauðarefsingum fjölgað um fimmtán prósent á milli áranna 2012 og 2013. Einungis 22 ríki framfylgdu dauðarefsingum á síðasta ári. Fyrir utan Kína eru Íranar, Írakar og Sádi-Arabar stórtækastir á þessu sviði, en Bandaríkin eru fimmta ríkið í hópi þeirra sem taka flesta af lífi. Alls voru 39 manns teknir af lífi í Bandaríkjunum á síðasta ári, en Bandaríkin eru eina landið á Vesturlöndum sem enn í dag stundar það að taka fólk af lífi. Á árinu 2013 gerðist það síðan að aftökum í Sómalíu fjölgaði verulega. Þær urðu 34 á árinu, þannig að Sómalía stendur ekki langt að baki Bandaríkjunum í þessum efnum. Ekki var hægt að fá staðfestingu á því hvort fólk hefði verið tekið af lífi í Egyptalandi eða Sýrlandi á síðasta ári. Í Egyptalandi voru hins vegar 539 manns dæmdir til dauða á einu bretti í síðustu viku, og var sú dómsuppkvaðning sögð einstök í sögunni, að minnsta kosti á síðari tímum.
Mest lesið Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Erlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Innlent Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Erlent Fleiri fréttir Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Sjá meira