Týnd veröld opnast fyrir ferðamenn 24. mars 2014 07:45 Hitabeltisloftslag, gullnar strendur og fallegar eyjar munu draga marga ferðamenn til Merguy-eyjaklasans í Myanmar á næstu árum. Fréttablaðið/AP
Eyjaklasi með 800 hitabeltiseyjum, gylltum mannlausum sandströndum, skógarþekju með fjölbreyttu dýralífi og engum ferðamönnum hljómar eins og það sé of gott til að vera satt. Enda eru breytingar í farvatningu á suð-vestur strönd Myanmar, og þeir sem nú vilja koma svæðinu á kortið hjá ferðamönnum reikna með að svæðið verði jafn vinsælt og Phuket-eyja í Taílandi innan skamms. Í dag eru engir vegir í frumskóginum á meginlandinu og fólkið sem býr á Merguy-eyjaklasanum fer á milli staða eins og það hefur alltaf gert, á húsbátum sem það eyðir meirihluta ævinnar á. Þetta er allt að breytast. Merguy-eyjaklasinn hefur verið kallaður Týnda veröldin, en nú hefur nútíminn fundið hana. Fyrst komi veiðimenn og skógarhöggsmenn frá meginlandinu. Í kjölfarið fylgja verktakar og ríkir ferðamenn. Þeir sem eru að tapa þessari týndu veröld er Moken-fólkið. Áður gat það lifað á sjónum, ferðast á milli eyjanna á húsbátum sínum. Í dag eru sífelt fleiri komnir í land, og áfengissýki hefur farið illa með fólkið. „Það var auðvelt að vinna sér inn peninga áður fyrr með því að stunda sjóinn. Það var auðvelt að fylla föturnar af fiski. En nú eru margir af meginlandinu farnir að veiða á svæðinu,“ segir Aung San. Hann liggur undir tré á eyju sem umheimurinn á ekkert nafn yfir, en er kölluð Eyja 115 á kortum, ásamt um það bil 20 körlum, konum og börnum af Moken-ættbálknum. „Lífið er orðið miklu erfiðara fyrir okkur og margir deyja.“ Svipaðir hópar bjuggu áður við strendur Taílands, til dæmis á vinsælu ferðamannasvæði á Phuket-eyju. Þeir sem eftir eru af frumbyggjum þess svæðis lifa flestir á ferðamönnum sem vilja ólmir láta taka af sér myndir eða kaupa vörur frá fólkinu. Þetta er ekki framtíðarsýn sem heillar Aung San. „Við viljum ekki deila svæði með fólkinu af meginlandinu. Við viljum fá að vera í friði.“Lífsmáti Moken-fólksins, sem segja má að séu frumbyggjar svæðisins, er að hverfa. Fréttablaðið/AP„Þetta var paradís“Fátt bendir til þess að sú ósk rætist. Herforingjastjórnin í Myanmar bannaði ferðir utanaðkomandi á svæðið til ársins 1996. Eftir að banninu var aflétt hafa ferðamenn komið í litlum hópum. Í fyrra komu um 2.000. Um það bil fimm á dag. Aðeins eitt hótel er á svæðinu, en þeim mun fjölga hratt á næstunni. Í gangi er nokkurskonar kapphlaup um bestu eyjarnar. Rúmlega tugur fyrirtækja hefur fengið leyfi til uppbyggingar og fleiri fylgja í kjölfarið. Á vefsíðu eins þeirra fyrirtækja sem nú vinna að uppbyggingu á svæðinu er talað um það sem „næsta Phuket“. Þetta eina fyrirtæki ætlar að byggja hótel með spilavíti, golfvöll og snekkjuhöfn. „Það er enginn infrastrúktúr, engir bæir, engir vegir. Ekkert. Þetta var paradís. Enginn í hópnum okkar hafði séð nokkuð þessu líkt. Þetta var töfrum líkast,“ segir Christoph Schwanitz. Hann kom sem ferðamaður fyrir ári síðan, en er nú hluthafi í fyrirtæki sem selur siglingar um eyjaklasann á lúxussnekkju. Þó ferðamannaiðnaðurinn hugnist heimamönnum ekki sérlega vel gæti hann verið betri kostur en það sem nú er í gangi. Ólöglegt skógarhögg má finna víða, togarar veiða upp við ströndina og veiðiþjófar herja á dýr í frumskóginum. Talsmenn þess að opna svæðið fyrir ferðamönnum segja að með því að leggja áherslu á umhverfisvæna ferðamennsku megi bjarga því sem bjargað verði í Merguy-eyjaklasanum.
Mest lesið Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Innlent Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Innlent „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Fleiri fréttir Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Sjá meira