Óásættanlegt að breyta orðalaginu 18. mars 2014 07:30 Jón Steindór Valdimarsson segir að mótmælendurnir á Austurvelli séu gott þversnið af þjóðinni. Fréttablaðið/Stefán
Jón Steindór Valdimarsson, formaður Já Ísland, er langt í frá hrifinn af hugmyndum Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra um að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um þá kosti að slíta aðildarviðræðum við Evrópusambandið eða hafa áframhaldandi viðræðuhlé. „Þetta er algjörlega ótækt og óásættanlegt og verður aldrei samþykkt,“ segir hann, aðspurður. „Þessar hugmyndir eru ekki í nokkru einasta samræmi við það sem menn sögðu fyrir kosningar.“ Í gær höfðu yfir 51.300 manns, eða yfir 21 prósent kosningabærra manna, tekið þátt í undirskriftasöfnun á síðunni Thjod.is um að þjóðaratkvæðagreiðsla verði haldin um hvort aðildarviðræðum verði haldið áfram eða ekki. „Þarna er framsetningin mjög einföld og skýr. Ég vara stjórnmálamenn, bæði í stjórn og stjórnarandstöðu við því að ætla að semja um eitthvað annað. Þá þurfa þeir að semja við þessar 51.300 manneskjur sem eru búnar að skrifa undir mjög ákveðna áskorun,“ segir Jón Steindór. „Menn verða að vara sig, þetta er ekki fyrir Alþingi til að leika sér með. Þetta er ekkert pólitískt „geim“ heldur mjög skýr og einföld krafa og hana eiga þeir að virða.“ Hann kveðst vera ánægður með þær þúsundir manna sem hafa haft uppi mótmæli á Austurvelli undanfarnar vikur. „Ég er sérstaklega ánægður með það líka að þetta er mjög gott þversnið af þjóðinni. Þarna er alls konar fólk á öllum aldri með alls konar pólitískar skoðanir sem er einhuga um þessa kröfu.“
Mest lesið Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Innlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Innlent „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Fleiri fréttir Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Sjá meira