Erlent

Sala kannabisefna leyfð í Colorado

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Íbúi í Colorado reykir löglega keypt kannabisefni.
Íbúi í Colorado reykir löglega keypt kannabisefni. Mynd/AP
Sitt sýnist hverjum um þá nýbreytni í Colorado að frá og með áramótunum sé löglegt að selja þar og kaupa kannabisefni.

Löggjafarþing ríkisins samþykkti lög þess efnis á síðasta ári, og tóku þau gildi 1. janúar. Washingtonríki hefur einnig sett sambærileg lög og taka þau gildi um mitt ár.

Stuðningsmenn nýju laganna vonast til þess að dýrkeypt stríð stjórnvalda gegn fíkniefnum verði nú viðráðanlegra, en gagnrýnendur telja þetta olíu á eldinn. Margir hafa meðal annars áhyggjur af því að unglingar eigi nú auðveldara með að komast yfir þessa tegund fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×