Menntun mikilvægust fyrir bætt lífsskilyrði Stefán Ó. Jónsson skrifar 26. febrúar 2014 13:59 Skólastúlkur í Níger. VISIR/AFP
Á heimsvísu telja flestir að aukin menntun sé til þess falinn að breyta mestu til batnaðar í lífi fólks. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Heimsljóss, veftímariti um þróunarmál sem kom út í dag. Þessi niðurstaða byggir á hálfri annarri milljón atkvæða sem bárust í My World könnunina sem staðið hefur yfir frá árinu 2012. Sameinuðu Þjóðirnar stóðu fyrir framkvæmd hennar ásamt Overseas Development Institute í Bretlandi. Atkvæði bárust frá 193 löndum en tveir af hverjum þremur töldu að aukin menntun myndi helst leiða til bættra lífsskilyrða hjá viðkomandi og fjölskyldu hans. Næst flestir töldu að heilsugæsla væri til þess fallin, því næst atvinnutækifæri og fjórða algengasta svarið var „heiðarleg og ábyrg stjórnvöld.“ Ákveðinn samhljóm má greina úr íslensku atkvæðunum 220 sem bárust í könnunina en Íslendingar telja einnig menntun vera mikilvægasta þáttinn í auknum lífskjörum. Jafnrétti kynjanna var íslensku þátttakendunum ofarlega í huga en það prýðir annað sæti listans. Könnunin mun standa fram á næsta ár en niðurstöðurnar verða að endingu færðar framkvæmdastjóra Sameinuðu Þjóðanna til viðmiðunar fyrir ný þúsaldarmarkmið árið 2015. „Markmið þeirra sem skipuleggja könnunina er að fá tvö þúsund manns frá hverju landi til þátttöku og því er ljóst að Íslendingar þurfa að bregðast við og fjölga íslenskum atkvæðum,“ segir á vefsíðu Heimsljóss. Nánari upplýsingar um þróunarmál má nálgast á síðu vefritsins.
Mest lesið Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Innlent Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Erlent Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Innlent „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Innlent Fleiri fréttir Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Sjá meira