Bjarni hættur hjá Fram: "Vildu bara losna við mig" Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. maí 2014 12:30 Bjarni Hólm Aðalsteinsson spilar ekkert í sumar. Vísir/Daníel „
Jú, það passar,“ segir knattspyrnumaðurinn Bjarni Hólm Aðalsteinsson í samtali við Vísi, aðspurður hvort hann sé búinn að gera starfslokasamning við Pepsi-deildarlið Fram. Bjarni er frá vegna meiðsla en hann er með ónýtt liðband og verður frá keppni allt tímabilið. „Þessi starfslokasamningur hefur ekkert með meiðslin að gera,“ segir hann. „Ég var að æfa á fullu á fullum krafti síðan í desember og allt í góðu. Ég kom aðeins við sögu í Reykjavíkurmótinu en svo var ég allt í einu ekkert að fá að spila þegar ég var heill og þá fannst mér þetta vera orðið eitthvað skrítið.“ Seyðfirðingurinn öflugi, sem spilaði vel í hjarta varnarinnar með Fram á síðasta tímabili, gerði nýjan samning við Safamýrarliðið eftir síðasta tímabil en þegar nýtt ár rann í garð vildu Framarar ekki halda honum lengur. „Þeir gáfu mér einhverjar tvær ástæður fyrir þessu sem ég kaupi ekki alveg og eru í raun og veru bara algjört kjaftæði. Ég var nýbúinn að semja en svo vildu þeir bara losna við mig,“ segir Bjarni við Vísi. Bjarni fór í aðgerð vegna meiðslanna og stefnir á að vera klár sem fyrst en hann verður sem fyrr segir ekkert með í sumar. Þetta tímabil er alveg búið hjá honum. „Ég meiðist eftir að þetta allt saman kemur upp þannig ég ákvað að fara bara í aðgerðina. Ég ætla að ná mér alveg heilum og vera klár eins fljótt og hægt er,“ segir Bjarni Hólm Aðalsteinsson sem er nú án liðs.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Styttist í að Orri Steinn verði ekki lengur stærsta sala FCK Fótbolti Daðraði við Dallas áður en hann skrifaði undir hjá Lakers á nýjan leik Körfubolti Hálffimmtug Venus snéri aftur með sigri Sport Þurfa að losa leikmenn til að skrá Rashford Fótbolti „Ég líki þessu svolítið við Blikana“ Fótbolti Mbeumo staðfestur hjá félagi drauma sinna Enski boltinn „Við erum ekki á góðum stað“ Íslenski boltinn „Líður eins og ég sé hraðari, sterkari og í betra standi en áður“ Fótbolti Enn leikmaður KR en nú lánaður til Lyngby Íslenski boltinn Amorim og Guardiola vilja fyrrum lærisvein þess fyrrnefnda Enski boltinn Fleiri fréttir „Við erum ekki á góðum stað“ Enn leikmaður KR en nú lánaður til Lyngby Íþróttamaður HK til liðs við ÍA Snýr heim í toppliðið sem dreymir um Bestu Fékk útrás fyrir keppnisskapið við heimilisstörfin „Gerir þetta skemmtilegt fyrir deildina“ „Búnir að bíða í 1435 daga eftir að komast á toppinn“ Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Valsmenn tóku toppsætið af tíu Víkingum Sjáðu sigurmark Viktors og takta Hallgríms fyrir norðan Hnéð gott og getur spilað meira: „Ég er tilbúinn“ Fór úr ökklalið og fótbrotnaði í Lengjudeildarleik Uppgjörið: KA - ÍA 2-0 | KA sendi KR í fallsæti Uppgjörið: Breiðablik-Vestri 1-0 | Blikar náðu Víkingum á toppnum Cosic skaut Njarðvík á toppinn áður en hann fer til KR Afturelding að styrkja sig fyrir seinni hlutann Víkingur afturkallar Daða Berg: Fær ekki að spila bikarúrslitaleikinn Birnir Snær genginn til liðs við KA „Bikarleikurinn sat aðeins í mönnum“ „Skemmtilegt og erfitt að spila á móti Fram“ Uppgjörið: Afturelding - Fram 1-1| Allt jafnt í Mosó Jón Páll aðstoðar Einar Leikur Grindavíkur færður vegna gossins Nýir erlendir leikmenn halda áfram að streyma í botnliðið Elvis snúinn aftur KR-ingar hafa enn ekki unnið útileik í sumar Sjáðu mörkin úr Bestu: Hetjudáðir fyrirliðans og alvöru innkoma Uppgjörið: ÍA - KR 1-0 | Skagamenn náðu fram hefndum Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan | Nauðsynlegur sigur fyrir Eyjamenn Árni farinn frá Fylki „Mikið undir fyrir bæði lið“ Sjá meira