Stytta af fyrsta þeldökka atvinnumanninum í fótbolta afhjúpuð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. október 2014 13:45 Wharton var mikill íþróttamaður. Vísir/Getty
Í dag verður tæplega fimm metra há stytta af markverðinum Arthur Wharton afhjúpuð í Burton á Englandi. Styttan sýnir Wharton skutla sér aftur á bak og slá bolta yfir þverslá. Wharton þessi er jafnan talinn fyrsti blökkumaðurinn sem var atvinnumaður í fótbolta og sá fyrsti sem lék í ensku deildakeppninni. Wharton fæddist í Jamestown í Ghana (eða Gullströndinni eins og landið nefndist þá) og kom upphaflega til Englands 1882 til að læra til trúboða. Hann sneri sér þó fljótlega að íþróttum, en auk þess að vera fótboltamaður var hann liðtækur hlaupari, hjólreiðamaður og krikketspilari. Wharton var t.a.m. sá fyrsti á Englandi sem hljóp 100 metra á undir tíu sekúndum. Wharton spilaði sem áhugamaður með Darlington og Preston North End og sem atvinnumaður með Rotherham Town og Sheffield United. Wharton varð gjaldþrota 1899, átti við drykkjuvandamál að stríða, en hann lauk ferlinum hjá Stockport County 1902. Eftir að knattspyrnuferlinum lauk starfaði hann í kolanámu. Wharton dó í fátækt 1930. Hugmyndin að styttunni er komin frá listamanninum Shaun Campbell sem kynntist sögu Wharton fyrir sjö árum og ákvað í kjölfarið að heiðra minningu hans með því að reisa styttu af honum. Hugmyndin komst þó ekki framkvæmd fyrr en nokkrum árum síðar. Árið 2012 afhenti Campbell Sepp Blatter, forseta FIFA, módel af styttunni og nú tveimur árum seinna er hún loks komin upp í fullri stærð.Módel af styttunni.Vísir/AFP
Enski boltinn Mest lesið Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Íslenski boltinn Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Enski boltinn ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast Íslenski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn Þór - FH | Hafnfirðingarnir fara norður á Akureyri Íslenski boltinn KA - Breiðablik | KA þarf að spyrna af botninum Íslenski boltinn Stjarnan - ÍBV | Eyjamenn kíkja í Garðabæinn Íslenski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Fleiri fréttir Arsenal - Chelsea | Stórleikur á Emirates Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Sjá meira