Keypti 99 iPhone síma handa kærustu sem sagði nei Kjartan Atli Kjartansson skrifar 11. nóvember 2014 15:56 Myndin var birt á vefnum Weibo.
Kínverskur maður keypti 99 iPhone-síma, raðaði þeim upp í hjarta og bað kærustu sinnar. Það dugði ekki til og því má segja að laun mannsins í tvö ár hafi farið fyrir lítið.Hér er önnur mynd sem birtist á Weibo.Erlendir miðlar hafa greint frá málinu og birt myndir sem upphaflega voru settar á kínverska samfélagsmiðilinn Weibo. Til dæmis fjallaði fréttastofa Yahoo um málið, en í frétt miðilsins kemur fram að maðurinn sé forritari og hafi viljað biðja konunnar sinnar í tilefni þess að í dag er hátíðisdagur í Kína; dagur hinna einhleypu. Hann vildi leggja á hana hnapphelduna áður en dagurinn gengi í garð og bar því upp bónorðið í gær. 99 símar af tegundinni iPhone 6 eru langt frá því að vera ódýrir. Á vefnum The Nanfang Insider kemur fram að símarnir hafi kostað rúmar tíu milljónir samanlagt. En þessar dýru gjafir dugðu ekki til; konan vildi ekki ganga í hjónaband og gat því haldið upp á dag einhleypra eins og á að gera það; ein síns liðs. Aðrir notendur Weibo hafa lagt til að maðurinn setji símana í sölu. Mikil eftirspurn er eftir iPhone 6 símum í Kína og ætti hann því ekki að eiga í erfiðleikum með að selja þá. Margir notendur Weibo sögðu athæfi mannsins hafa verið heimskulegt og einn spurði hann hversu mörg nýru hann hefði selt fyrir símann. Fyrir þá sem vilja vita af hverju 11. nóvember er dagur einhleypra í Kína, er nóg að horfa á dagsetninguna. Hún er 11/11 og eins og flestir vita er einn sú tala sem er hvað mest einmana.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Sjá meira