Alþingi dæmt til að greiða ræstingakonu 1.200 þúsund krónur Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 16. janúar 2014 16:56 Alþingi hafði áður verið sýknað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. mynd/gva
Hæstiréttur dæmdi í dag Alþingi til þess að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum 1.200 þúsund krónur í skaðabætur vegna ólöglegrar uppsagnar haustið 2009. Alþingi hafði áður verið sýknað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Fyrrverandi starfsmanninum, konu sem vann við ræstingar, var sagt upp störfum eftir að hafa verið í veikindaleyfi í 360 daga og var réttur hennar til launa samkvæmt kjarasamningi þá fallinn niður. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að konan hefði þá ekki verið fær sökum líkamlegrar vanheilsu að hefja að nýju vinnu í fullu starfi. Þótt konan hefði verið búin að glata rétti sínum til launa hefði Alþingi ekki verið heimilt samkvæmt kjarasamningi að leysa hana frá störfum vegna umrædds heilsubrests fyrr en í ágúst 2010, nema hún hefði sjálf óskað þess. Ekki var gengið úr skugga um hvort líkamleg heilsa konunnar hefði þá enn staðið í vegi fyrir að hún gæti tekið við fyrra starfi sínu og henni var ekki gefinn kostur á að tjá sig um fyrirhuguð starfslok á þeim tíma. Alþingi var því dæmt til að greiða konunni ofangreindar skaðabætur, auk málskostnaðar, samtals 1.800 krónur.
Mest lesið Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Innlent Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Erlent Fjórir handteknir í aðgerðunum í Gnoðarvogi Innlent Haraldur Briem er látinn Innlent Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Erlent Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Erlent Erlendir hópar komi til Íslands í skamman tíma til að hnupla úr verslunum Innlent Tilkynnt um sjónskerðingu og sjálfsvígshugsanir eftir inntöku þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Erlent Gagnrýni á fegurðarsamkeppnir sé ekki niðurlæging í garð kvenna Innlent Fleiri fréttir Helgi Vilberg Hermannsson er látinn Haraldur Briem er látinn Fjórir handteknir í aðgerðunum í Gnoðarvogi Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Vara við eldislax í Haukadalsá Erlendir hópar komi til Íslands í skamman tíma til að hnupla úr verslunum Líkamsræktarstöðin í Laugum rýmd: Reykurinn reyndist vera gufa Tilkynnt um sjónskerðingu og sjálfsvígshugsanir eftir inntöku þyngdarstjórnunarlyfja Gagnrýni á fegurðarsamkeppnir sé ekki niðurlæging í garð kvenna Líkamsræktarstöð World Class í Laugum rýmd vegna vatnsleka Skuggahliðar þyngdarstjórnunarlyfja og útskúfun vegna BDSM Ámálaða merkið þótti ekki nógu flott Slasaður eftir að tveir bílar skullu saman á hættulegum gatnamótum við Skógafoss Vísað úr landi eftir ólöglega dvöl: Togaði í hár konunnar, sparkaði í hana og mölvaði síma hennar Guðbjörg ráðin skólastjóri í tólfta grunnskóla Hafnarfjarðar Skyldleiki við lögregluþjón þvældist fyrir Stærðar borgarísjaki sást vestur af Látrabjargi „Hefði ég ekki verið kominn af stað væri ég ekki að tala við þig núna“ Kærumál seinkar verklokum við brúagerð í Gufudalssveit Bjóða þeim sem skera niður regnbogafána í heimsókn Valdar strætóleiðir ganga oftar og lengur Hafi ekki forsendur til að efast um ákvörðun Sjúkratrygginga Rannsókn á „bíræfnum“ þjófnaði á viðkvæmu stigi Niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu verði tryggð Niðurgreidd sálfræðiþjónusta, tollar á lyf og hitamet Óprúttnir aðilar hóta rofinni rafmagnstengingu berist greiðsla ekki strax „Ég hef engar vísbendingar fengið um að þetta sé að gerast“ Allir gangi hamingjusamir úr nýjustu sundlaug landsins Ástandið á Gasa: 42 prósent telja að Íslendingar ættu að beita sér meira „Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Sjá meira